Flutningabíll valt við mislægu gatnamótin á Sæbraut við Ártúnsbrekku fyrir skömmu. Tveir lögreglubílar og sjúkrabíll voru sendir á vettvang. Ökumaður flutningabílsins hlaut minni háttar áverka. Þetta staðfestir Unnar Már Ástþórsson aðalvarðstjóri. Búast má við umferðatöfum um gatnamótin og hann biður fólk að sýna tillitsemi og ró. Veginum verður lokað í skamma stund og umferð beint annað á meðan. Að sögn Unnars mun taka dágóðan tíma að rétta flutningabílinn af og koma umferð í venjulegt horf. Stór og sérhæfð ökutæki þarf til að koma ökutækinu á réttan kjöl. „Það kæmi ekki á óvart ef þetta tæki á aðra klukkustund,“ segir Unnar.