Innlent | mbl | 19.8.2026 | 10:23 „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk í þessari stöðu“ Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Samsett mynd/mbl.is/Ómar/Eggert Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Beint: Ásgeir fer yfir stöðu mála „Góðar fréttir í baráttunni við verðbólgu“ Vaxtahækkun líklegust að mati stærstu bankanna » Fleiri tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum Meira jafnvægi að komast á markaðinn Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Birta í íbúðum er aðalatriðið » Fleiri tengdar fréttir „Stóru vonbrigðin eru þau að við höfum tapað núna heilu ári í baráttunni við verðbólguna. Við erum bæði komin með ítrekaðar vaxtahækkanir og erum komin í þá stöðu að forsenduákvæði kjarasamninga virkjast og það þarf að fara yfir það hvort það kalli á viðbrögð og hvers konar viðbrögð þá.“ Þetta segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, en peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti um hækkun stýrivaxta um 0,25% í morgun. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 8%. Frétt af mbl.is „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum Sviðsmyndin slæm Bjarni segir hagvaxtarhorfurnar ekki nema í besta falli þokkalegar og atvinnuleysi sé að hækka á sama tíma og vextir séu að hækka þannig að það sé að teiknast upp mjög slæm sviðsmynd. Hann segir að nú þurfi að vanda mjög vel til verka og að leiðin út úr þessum aðstæðum sé mjög þröngt einstigi ef ekki eigi að koma skellur. Frétt af mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Segir Bjarni þó að allar aðstæður séu til staðar til þess að spila betur úr stöðunni en gert hefur verið. Hann segir að á útgjaldahlið opinberra fjármála séu menn enn of værukærir. Þar sé verið að búa til sjálfvirkar útgjaldahækkanir og menn að reyna að ná jöfnuði með áframhaldandi skattlagningu í umhverfi þar sem vextir eru komnir í hæstu hæðir og atvinnuleysi sé vaxandi. Seðlabanki Íslands. mbl.is/Árni Sæberg „Það þarf miklu meira að gerast á útgjaldahliðinni og það þarf að stöðva útgjaldavöxt hins opinbera, ná jafnvægi og skapa svo skilyrði fyrir viðspyrnu og hagvöxt. Um leið og jafnvægi næst þá geta vextir lækkað en það mun ekki duga eitt og sér vegna þess að við þurfum vöxt í útflutningsgreinarnar og til þess þarf að huga að samkeppnisskilyrðunum. Við getum ekki vænst þess að útflutningsgreinarnar taki við sér þegar launastigið er í hæstu hæðum, vextir sömuleiðis og gengið mjög sterkt. Ofan á þetta er verið að bæta við nýjum sköttum og gjöldum. Nú verða menn að fara að vakna aðeins og skilja að leiðin út úr þessu er að leggja meira á sig til þess að fá jafnvægi í hagkerfið og greiða svo fyrir vexti útflutningsgreinanna.“ Frétt af mbl.is Beint: Ásgeir fer yfir stöðu mála Húsnæðismarkaðurinn áhyggjuefni Bjarni segist hafa verulegar áhyggjur af húsnæðismarkaðnum um þessar mundir og honum finnst þær forsendur sem menn hafa gefið sér í aðdraganda fjárlagagerðar vera allt of bjartsýnar. „Við þurfum að endurheimta jafnvægi. Það má ekki gefast upp í baráttunni við verðbólguna og við verðum að ná vöxtum niður en á sama tíma þarf að endurheimta jafnvægi á húsnæðismarkaðnum heilt yfir og það verður ekki gert eingöngu með opinberum lausnum. Þegar þessum árangri er náð þá er mikilvægt að allir átti sig á því að lífskjörin verða áfram eins og hingað til byggð á því að útflutningsgreinarnar búi við góð skilyrði.“ Bjarni segir alveg augljóst að ekki sé svigrúm fyrir frekari launahækkanir við þessar aðstæður en að löngu sé ákveðið og skrifað í samninga að ef þessi skilyrði myndu virkjast þyrfti að setjast niður og það verði gert. „Við ákváðum líka á þeim tímapunkti að viðbrögð okkar þyrftu að samræmast þeim markmiðum sem við vorum að vinna að með samningunum og markmiðið var og á enn að vera að lækka verðbólgu og vexti. Nú erum við í varnarbaráttu. Menn verða að skilja það hvenær við erum í færi til að skora mark og hvenær við þurfum bara að passa að fá ekki á okkur fleiri mörk. Við megum ekki við því að fá á okkur fleiri mörk núna í þessari stöðu.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Beint: Ásgeir fer yfir stöðu mála „Góðar fréttir í baráttunni við verðbólgu“ Vaxtahækkun líklegust að mati stærstu bankanna » Fleiri tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum Meira jafnvægi að komast á markaðinn Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Birta í íbúðum er aðalatriðið » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gréta María stofnar fyrirtæki „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ Gaf öllum leiguna Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Samningi Pogba rift Umræðan Aftur heim Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Víða léttskýjað en þokuloft við ströndina Hitnaði í kolunum á kappræðum Hefur áhyggjur verði ekki gripið í taumana Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Bankinn breytti reglunun Þjófnaður og líkamsárás í matvöruverslun Vilja ekki kalla saman þing til lækkunar VSK Flutningabíll valt á hliðina „Það voru litlar táslur þrammandi um allt“ Stærðarinnar ísjaki á Ísafjarðardjúpi Átta læknar með yfir fimm milljónir Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Nýjast á mbl.is » Gréta María stofnar fyrirtæki „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ Gaf öllum leiguna Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Samningi Pogba rift Umræðan Aftur heim Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vaxtahækkun líklegust að mati stærstu bankanna Flutningabíll valt á hliðina Segist ekki hafa farið með: „Leist ekki á blikuna“ Hitnaði í kolunum á kappræðum Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Bankinn breytti reglunun Þjófnaður og líkamsárás í matvöruverslun Vilja ekki kalla saman þing til lækkunar VSK Flutningabíll valt á hliðina „Það voru litlar táslur þrammandi um allt“ Stærðarinnar ísjaki á Ísafjarðardjúpi Átta læknar með yfir fimm milljónir Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi