Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig

Read Full Article →

Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti í morgun um 0,25 prósentustig, úr 7,75% í 8%. Vextir höfðu þegar verið hækkaðir tvisvar á þessu ári, um samtals hálft prósentustig. Fjórir nefndarmenn peningastefnunefndar studdu ákvörðunina að hækka stýrivexti en einn vildi halda vöxtum óbreyttum. Greiningadeildir bankanna höfðu spáð því að stýrivextir yrðu hækkaðir um 0,25%. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er talið að verðbólga, sem mældist 5,3% í júlí, aukist enn frekar næstu mánuði en hjaðni tiltölulega hratt þegar komi fram á næsta ár. Hækkun opinberra gjalda og stríðsátök valda verðbólgu „Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum,“ segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar. Þar kemur fram að undirliggjandi verðbólga hafi haldist stöðug og sé tekin að hjaðna á suma mælikvarða „í takt við vaxandi slaka í þjóðarbúinu“. Nefndin vísar til þess að enn sem komið er virðist annarrar umferðar áhrif þessara verðhækkana vera minni en upphaflega var óttast. Verðbólguálag á markaði hafi einnig lækkað á ný eftir hækkun í vor. Verðbólguvæntingar séu þó enn of háar og undirliggjandi verðbólga of mikil. „Þó búist sé við að verðbólga hjaðni hratt á næsta ári er óvissa áfram mikil, ekki síst hvað varðar þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindu á innlendum vinnumarkaði. Í ljósi mikillar verðbólgu og hárra verðbólguvæntinga telur peningastefnunefnd rétt að hækka vexti bankans til að tryggja nægjanlegt peningalegt aðhald. Mótun peningastefnunnar mun þó sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“

Share this article