Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Boða allt að 70 % hækkun á máltíðum fyrir eldri borgara

Read Full Article →

Fulltrúar meirihlutans í velferðarráði Reykjavíkurborgar hafa samþykkt tillögu um gjaldskrárhækkun á máltíðum og heimsendum mat í þjónustuíbúðum og félagsmiðstöðvum frá og með 1. september. Hækkunin óumflýjanleg Eftir hækkun verður verð á máltíð fyrir eldri borgara 1.900 krónur en var áður 1.100 eða 1.190 krónur. Þetta er hækkun upp á allt að rúmlega 70 prósent. Formaður velferðarráðs segir hækkunina óumflýjanlega. Gildandi samningur við fyrirtæki sem þjónustar mötuneyti hafi ekki verið fullfjármagnaður. Verð á máltíðum fyrir eldri borgara í Reykjavík hækkar um allt að rúmlega sjötíu prósent ef tillögur fulltrúa meirihlutans í velferðarráði ná fram að ganga. Formaður ráðsins skellir skuldinni á fyrri borgarstjórn. „Það sem fráfarandi meirihluti gerði var að gera þennan samning sem kostar rúman hálfan milljarð, en lætur ekki fylgja með nema helminginn, 250 milljónir, þannig að sá peningur kláraðist í mars,“ segir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, formaður velferðarráðs. Núverandi gjaldskrá undir kostnaðarverði Eftir hækkunina nemur niðurgreiðsla hverrar máltíðar fyrir eldri borgara rúmlega 40 prósentum. Ragnhildur Alda segir nauðsynlegt að koma matarþjónustunni á sjálfbæran rekstrargrundvöll. Núverandi gjaldskrá hafi verið langt undir kostnaðarverði og því sé nauðsynlegt að bregðast við. „Núna í raun og veru er okkar markmið bara að hækka þannig að við náum að greiða fyrir matinn og niðurgreiðum eins mikið og mögulegt er af þessum mat. En svo þurfum við í kjölfarið að reyna að grípa til aðgerða til að finna leiðir til að skýla þeim sem minnst hafa milli handanna.“ Tillagan verður lögð fyrir borgarráð á fimmtudag.

Share this article