Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf

Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.8.2026 | 10:51 „Algjörlega galið“ að stýrivextir nálgist fyrra horf Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, segir ákvörðun Seðlabankans senda röng skilaboð. Samsett mynd mbl.is/Eggert/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Beint: Ásgeir fer yfir stöðu mála „Góðar fréttir í baráttunni við verðbólgu“ » Fleiri tengdar fréttir „Ég skal bara fúslega viðurkenna að þetta kemur mér verulega á óvart að Seðlabankinn skuli fara þessa leið,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands og Verkalýðsfélags Akraness. Greint var frá því í morgun að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefði ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 8%. Fjórir nefndarmenn studdu ákvörðunina en einn vildi halda vöxtum óbreyttum. Frétt af mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Ákvörðunin sendir röng skilaboð „Nú eru forsendur kjarasamninga í raun og veru brostnar og það væri nú kannski meiri bragur á því að vera frekar með einhver varnaðarorð, bæði til vinnumarkaðarins og verslunar og þjónustu og hvetja menn til að reyna að finna sameiginlega lausn því við getum þetta saman,“ segir Vilhjálmur, en hann hefði viljað sjá stýrivexti óbreytta eða jafnvel lækkaða. „Með því að lækka stýrivextina hefði Seðlabankinn einfaldlega verið að senda þau skilaboð að hann sé tilbúinn að taka þátt í því að það myndist einhvers konar þjóðarsátt um að vinna bug á þessu,“ segir Vilhjálmur. Frétt af mbl.is Verkafólk stóð við sitt en aðrir brugðust Að sögn Vilhjálms er „algjörlega galið“ að stýrivextir nálgist aftur 9,25%, líkt og í apríl 2024 er kjarasamningar voru undirritaðir. „Okkur tókst á fyrsta ári að ná þeim dálítið hressilega niður og nú erum við farin að nálgast aftur það sem þeir voru í áður en við fórum í þessa vegferð. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að menn finni lausnir.“ Ekki hægt að senda vandamálið til Brussel Mun vaxtaákvörðunin ýta undir vilja verkalýðshreyfingarinnar til Evrópusambandsviðræðna? „Það eina sem við vitum er að þetta vandamál fer ekkert frá okkur. Það þýðir ekkert að pakka niður sleggjunni og senda hana til Brussel. Vandamálið fer ekki neitt. Við þurfum alltaf að leysa þetta vandamál sjálf og finna lausn á því.“ Vilhjálmur segir að tími sé kominn til að stjórnmálamenn, Samtök atvinnulífsins, verkalýðshreyfingin og „allir aðrir“ taki höndum saman og vinni bug á þeim aðstæðum sem myndast hafa í íslenskum efnahag. „Við getum það með samstilltu átaki. En að ætla sér núna að fara að eyða allri orkunni í aðildarviðræður á sama tíma og við stöndum frammi fyrir þessu risavaxna vandamáli, það er að mínu mati algjör skandall. Það liggur fyrir að ef við ætlum að fá að taka upp evru þá þurfum við hvort eð er að vinna bug á vaxtamálunum okkar, verðtryggingunni og verðbólgunni.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Beint: Ásgeir fer yfir stöðu mála „Góðar fréttir í baráttunni við verðbólgu“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Hlaup í Múlakvísl og mikil gasmengun Stal ógrynni af kjúklingabringum United nálgast Kamerúnann Ekki ein einasta ýsa í aflanum Umræðan Aftur heim Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Hefur áhyggjur verði ekki gripið í taumana „Sterk fælingarskilaboð“ Stærðarinnar ísjaki á Ísafjarðardjúpi Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Bankinn breytti reglunun Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Þjófnaður og líkamsárás í matvöruverslun Vilja ekki kalla saman þing til lækkunar VSK Flutningabíll valt á hliðina „Það voru litlar táslur þrammandi um allt“ Stærðarinnar ísjaki á Ísafjarðardjúpi Átta læknar með yfir fimm milljónir Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Nýjast á mbl.is » „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Hlaup í Múlakvísl og mikil gasmengun Stal ógrynni af kjúklingabringum United nálgast Kamerúnann Ekki ein einasta ýsa í aflanum Umræðan Aftur heim Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Stærsta Menningarnótt til þessa Hefur áhyggjur verði ekki gripið í taumana Segist ekki hafa farið með: „Leist ekki á blikuna“ Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Bankinn breytti reglunun Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Þjófnaður og líkamsárás í matvöruverslun Vilja ekki kalla saman þing til lækkunar VSK Flutningabíll valt á hliðina „Það voru litlar táslur þrammandi um allt“ Stærðarinnar ísjaki á Ísafjarðardjúpi Átta læknar með yfir fimm milljónir Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi

Share this article