Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

„Það eru engin fórnarlömb hér“

Read Full Article →

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri kallaði eftir ábyrgð aðila vinnumarkaðarins ef takast á að ná vöxtum niður. Á kynningarfundi Seðlabankans í morgun sagði hann að þrátt fyrir að allt bendi til þess að forsenduákvæði kjarasamninga muni virkjast þá hafi kaupmáttur aukist „miklu meira en gert var ráð fyrir og heldur áfram að aukast“. „Þannig að það er engin fórnarlömb hér,“ sagði Ásgeir. „Ég bara auglýsi eftir ábyrgð hjá aðilum vinnumarkaðarins. Ef þeir vilja sjá lægri vexti, þá eru hlutir sem þeir geta gert. Það væri til dæmis hægt að endursemja og fresta launahækkunum, bíða með þær eða eitthvað álíka. Það myndi hjálpa verulega til.“ Ásgeir benti á að forsvarsmenn bæði atvinnurekenda og verkalýðsfélaga hafi talað lengi um mikilvægi þess að ná vaxtastiginu niður. Hann sagði að það væri mjög einfalt að greiða fyrir lægri vöxtum, það fælist einfaldlega í að eyða óvissu um kjarasamninga. Vaxtastig Seðlabankans væri náttúruleg afleiðing af því sem aðrir gera úti í þjóðfélaginu, þar á meðal á vinnumarkaði og í stjórnmálum. „Við fáum þetta allt til okkar og við bregðumst við með því að hækka og lækka vexti. Verkefni peningastefnunnar hefur náttúrulega verið ansi mikið, bregðast við gríðarlegri hækkun á húsnæðisverði sem er enn að leggja til verðbólgunnar og gríðarlegum launahækkunum sem eiga sér ekki eiginlega neina hliðstæðu í neinu öðru vestrænu ríki.“ Sjá einnig „Þetta gerist ekki hjá nokkurri annarri þjóð“ Erfitt þegar opinber gjöld hækka umfram verðbólgumarkmið Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig, upp í 8,0%. Þetta var þriðja vaxtahækkun nefndarinnar í ár. Ásgeir sagði síðustu tvær vaxtahækkanir hafa gengið mjög vel eftir, sem sjáist m.a. í lækkun á verðbólguálagi. Hann sagði þó óvissu ríkja í tengslum við vinnumarkaðinn og að einhverju marki opinber fjármál, auk áhrifa stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Sjá einnig Aukin verðbólga „fyrst og fremst“ vegna hækkunar opin­berra gjalda „Það er náttúrulega líka dálítið erfitt fyrir okkur að sjá að opinberar stofnanir og opinberir aðilar eru að hækka gjaldskrár umfram verðbólgumarkmið. Það er ekki auðvelt fyrir okkur að ná markmiðinu ef að opinberar stofnanir, sem finna ekki fyrir vöxtunum okkar, eru að hækka [gjaldskrár umfram markmið].“ „Verðhækkanir eru mestar hjá hinu opinbera“ Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, bætti við að launahækkanir og gjaldskrárhækkanir hjá hinu opinbera væru áhyggjuefni. „Það er áhugavert að störfum hjá einkageiranum er að fækka, störfum hjá hinu opinbera er að fjölga mikið. Launahækkanir eru mestar hjá hinu opinbera og verðhækkanir eru mestar hjá hinu opinbera. Þetta auðvitað gefur tilefni til að staldra við.“

Share this article