Varhugavert er að staldra við nálægt Múlakvísl eða vera nálægt upptökum hennar við jökuljaðar Kötlujökuls vegna mikillar gasmengunar sem fylgir jökulhlaupi. Rafleiðni í Múlakvísl hefur hækkað jafnt og þétt undanfarna sólarhringa og er orðin óvenju há miðað við árstíma. Rafleiðni mælist um 286 míkróS/cm. „Leiðnimælingar segja til um magn jarðhitavatns í ám og há gildi benda til þess að lítið jökulhlaup sé í gangi,“ segir í tilkynningu Veðurstofunnar. Vatnshæð í ánni hefur enn sem komið er ekki hækkað samhliða leiðniaukningunni en mögulegt er að það geti gerst á næstu dögum. Hægviðri eykur hættu á að gas safnist í lægðum Hlaup af þessari stærðargráðu eru vel þekkt í Múlakvísl. Mikil gasmengun fylgir hlaupinu að þessu sinni. Í nótt mældist brennisteinsvetni við Láguhvola, sem eru um tvo kílómetra frá jökuljaðri Kötlujökuls, yfir heilsuverndarmörkum. „Hægviðri undanfarna daga eykur einnig hættuna á að gas safnist fyrir í lægðum. Ef fólk finnur fyrir einkennum, svo sem sviða í nefi eða augum, á að yfirgefa svæðið strax,“ segir í tilkynningu. Sólarhringsvakt Veðurstofu Íslands fylgist áfram með mælingum á svæðinu og sendir út nýjar upplýsingar ef breytingar verða.