Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Ef ég fer í blackout þá drep ég hann“

Read Full Article →

Upptökur sem ekki var hægt að spila á við upphaf aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu svokallaða voru spilaðar þegar aðalmeðferð var fram haldið í morgun í Héraðsdómi Suðurlands. Erfitt reyndist að heyra það sem kemur fram á upptökunum vegna tæknilegra örðugleika. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024. Líkt og áður hefur komið fram er fordæmalaust magn af upptökum til í málinu. Vitað er að upptökurnar náðu yfir vikutímabil. Sími Andra tók upp öll símtöl og einnig hljóð þegar hringt var úr símanum þó að símtölunum væri ekki svarað. Ekki hefur þó komið fram hvers vegna símtæki Andra Más tók upp með þessum hætti. Búist er við því að við lok dagsins í dag hafi allir ákærðu gefið skýrslu. Brotaþoli mun því gefa skýrslu á morgun og er búist við að það muni taka allan daginn. Óttaðist að hann myndi drepa manninn „Vertu kyrr, ekki fokking hreyfa þig eða ég sparka meira í þig,“ heyrist Andri Már segja á upptökunni. Í símtalinu ræddi Andri síðan við Ingunni, unnustu sína, þar sem hann biður hana að redda bíl. Líklega var það stuttu eftir að brotaþoli losnaði til skamms tíma úr haldi þremenninganna sem réðust upphaflega á hann. Þar kvaðst Andri Már vera við það að detta út og sagði að mennirnir tveir sem hann hafði með sér hefðu yfirgefið sig. Hann bað Ingunni ítrekað um að hjálpa sér. „Hver er staðan Ingunn mín?“ spyr Andri og Ingunn segist hafa í huga að hafa samband við ákveðinn mann. „Nei, hann er snitch,“ segir Andri við því. „Ég er að detta út, Ingunn,“ segir Andri Már. „Þeir beiluðu á mér. Þeir ætluðu að láta hann sleppa og þá fer ég í fangelsi.“ „Ef ég fer í blackout þá drep ég hann,“ segir Andri á upptökunni. „Tengdasonurinn búinn að gera allt vitlaust?“ Andri heyrðist einnig ræða við annan mann sem ekki verður nefndur um flug mannsins. Samkvæmt ákæru fylgdu Andri, bróðir hans og Ingunn unnusta hans brotaþola upp á Keflavíkurflugvöll þar sem hann flaug til Parísar og þaðan til Möltu. Andri sagðist á upptökunni hafa í hyggju að kaupa sér annað flug til þess að geta fylgst með brotaþola yfirgefa landið. Á annarri upptöku virðist Andri Már ræða við tengdaföður sinn. „Tengdasonurinn búinn að gera allt vitlaust,“ segir hann við manninn. Hann reynir að hughreysta hann og segja honum að Ingunn sé komin inn í málið. Allt eigi eftir að reddast. Þeir ræða þá einnig um fyrirspurnir vinnuveitanda brotaþola. „Hvaða eftirlit er þetta? Af hverju er svona mikið eftirlit með honum?“ spyr hann eftir að vinnuveitandi brotaþola hafði greinilega grennslast eftir honum. Að lokum segir hann við tengdaföður sinn að ekki sé hægt að sanna neitt. „Veistu af hverju? Af því hann er farinn úr landi,“ heyrist Andri segja. „Það er ekki hægt að rekja neitt sem er ekki tekið upp.“ Virtist hyggja á frekari brot Önnur upptaka virðist vera af samskiptum Andra Más og Ingunnar. „Hæ gullið mitt, ég segi bara ógeðslega gott. Mér líður bara ógeðslega vel. Ég er kominn á mótorhjól sem mig hefur dreymt um,“ heyrist í Andra Má. Þá segist hann vera búinn að eyða talsvert miklum peningum og ætli að halda því áfram. Þá fer hann einnig yfir eyrnalokka sem hann virðist hafa keypt fyrir Ingunni. „Veistu hvað það eru margir eyrnalokkar pantaðir eins og þú ert með?“ sagði Andri. „Það er bara ein stelpa á landinu og örugglega einhver gömul kona sem er með svona eyrnalokka.“ Í öðru símtali við Ingunni biður hann hana að verða sér úti um ódýran snjallsíma sem hægt verði að nota í framtíðinni þar sem þau séu nú með rafræn skilríki brotaþola. Allt bendir til þess að Andri hafi fyrirhugað frekari brot á manninum. „Við getum notfært okkur fokking kennileitið hans. Við getum verið hann,“ segir Andri.

Share this article