Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Áfellisdómur yfir hagstjórninni

Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.8.2026 | 13:45 Áfellisdómur yfir hagstjórninni Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins vandar ríkisstjórninni ekki kveðjurnar og segir hana koma vandamálunum yfir á aðra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Beint: „Eru háir stýrivextir alltaf besta svarið?“ „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Ásgeir: Hækkun á verðbólguvæntingum gengur til baka „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum » Fleiri tengdar fréttir „Ríkisstjórnin vísar hagstjórninni frá sér. Í stað þess að búa hér til þjóðarsátt og leiða alla saman til þess að ná verðbólgunni niður eins og allar aðrar ríkisstjórnir hafa gert í sögu þjóðarinnar,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins í samtali við mbl.is um vaxtahækkun Seðlabanka Íslands í morgun. Lilja Dögg segir ríkisstjórnina þess í stað vísa á aðra, ýmist atvinnulífið eða verkalýðshreyfinguna, auk þess að kenna öðrum um þegar illa gangi, sagt að hér hafi náðst kjarasamningar sem hafi ekki verið fjármagnaðir. „Það er einfaldlega rangt,“ segir formaðurinn. Frétt af mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Hún segir vaxtahækkunina áfellisdóm yfir hagstjórninni. „Þau voru komin í vaxtalækkunarferli í lok árs 2024 og verðbólgan var farin að lækka verulega, sem var fagnaðarefni. Það sem hefur hins vegar gerst á síðustu átján mánuðum er að ríkisstjórnin hefur verið að hækka skatta og gjöld á sama tíma, heimilin glíma við háa vexti og veikara efnahagsumhverfi,“ heldur Lilja Dögg áfram. Afleiðingin sé sú að Seðlabankinn telji sig þurfa að herða peningastefnuna enn frekar. Ríkisfjármálin hafi hins vegar ekki verið að vinna með peningastefnunni heldur gegn henni. Þess vegna erum við hér stödd „Þrátt fyrir orð fjármála- og efnahagsráðherra í þá veru að þegar ríkisútgjöld séu aukin verulega, eða sem nemur 143 milljörðum á milli ára, ásamt því að fara í umfangsmiklar gjaldskrárhækkanir, hafi það mjög neikvæð áhrif á verðbólguvæntingar. Ríkisstjórnin hefur ekki tekið þetta nægilega alvarlega og þess vegna erum við stödd þar sem við erum stödd,“ segir Lilja Dögg. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra. Samsett mynd/ Samdráttur sé á almenna markaðnum á meðan hið opinbera auki áfram við. „Við þurfum akkúrat á hinu að halda, að hagstjórnin fari hönd í hönd. Við í Framsókn lögðum fram tillögur í apríl sem voru vel útfærðar. Þar lögðum við í fyrsta lagi til nýja þjóðarsátt um efnahagsmál, sem við vorum sannarlega til í að taka þátt í, í öðru lagi að komið yrði á laggirnar samræmdri og fyrirsjáanlegri gjaldttöku hins opinbera, í þriðja lagi að tekin yrði upp verðbólgusía við opinberar ákvarðanir, að hækkanir yrðu ekki umfram 2,5 prósenta verðbólgumarkmið, og í fjórða lagi tímabundin lækkun skatta á matvæli og eldsneyti á meðan áhrif ástandsins í Mið-Austurlöndum gengju yfir og í fimmta lagi að farið yrði í aðgerðir til að halda aftur af lækkun leiguverðs,“ segir hún enn fremur. Framsókn leggi til að ríkisstjórnin taki efnahagsmálum alvarlega. „Forsendubrestur varð varðandi fjármálastefnuna og við lögðum til að betur yrði farið ofan í það svo hún hefði þann trúverðugleika sem væri nauðsynlegur, en ekki var hlustað á það,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins að lokum. Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Beint: „Eru háir stýrivextir alltaf besta svarið?“ „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Ásgeir: Hækkun á verðbólguvæntingum gengur til baka „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » OpenAI hægir á þróun eftir netárás gervigreindar Unnu álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum Maður fannst látinn á vellinum Áfellisdómur yfir hagstjórninni Landsliðið fyrir HM valið Umræðan Aftur heim Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flutningabíll valt á hliðina Víða léttskýjað en þokuloft við ströndina Unnu álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum „Ef þetta heldur áfram svona þá drep ég hann“ Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Bankinn breytti reglunun Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Þjófnaður og líkamsárás í matvöruverslun Vilja ekki kalla saman þing til lækkunar VSK „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Nýjast á mbl.is » OpenAI hægir á þróun eftir netárás gervigreindar Unnu álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum Maður fannst látinn á vellinum Áfellisdómur yfir hagstjórninni Landsliðið fyrir HM valið Umræðan Aftur heim Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vaxtahækkun líklegust að mati stærstu bankanna Myndskeið: Búið að losa bílinn frá tengivagninum Unnu álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Bankinn breytti reglunun Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Þjófnaður og líkamsárás í matvöruverslun Vilja ekki kalla saman þing til lækkunar VSK „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi

Share this article