Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kristrún skipt um skoðun

Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.8.2026 | 14:10 Kristrún skipt um skoðun Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Unnu álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum Dugar 49% já til að viðræður hefjist? Dýrt fyrir Ísland að ganga í ESB Konur óákveðnari en karlar Íslandi beri skylda til að endurmeta stöðuna » Fleiri tengdar fréttir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra hafa lýst því ágætlega að það lagi ekki efnahagsástandið að sækja um ESB-aðild. Kristrún hafi skipt um skoðun varðandi aðild. Guðlaugur Þór lét þessi orð falla í framsögu sinni á kappræðum um kosti og galla ESB-aðildar sem fram fóru í Hörpu á sunnudagskvöld en hægt er að horfa á viðburðinn hér . Við það tækifæri rifjaði Guðlaugur Þór upp að stjórnarliðar hefðu afboðað þátttöku á fundinum. Stjórnarliðar mættu ekki „Þegar við fengum boð um að mæta var nú gert ráð fyrir því að hér yrðu ráðherrar og eða þingmenn. Þeir voru ekki tilbúnir til þess að gera það ... og mér þykir það miður að það sé ekki vegna þess að við þurfum að ræða þessi mál og ræða þau af hreinskilni og heiðarleika. En ég vil nota tækifærið og hrósa sérstaklega Jónasi (Hagan) og Hjálmari (Vilhjálmssyni) fyrir að taka þessa umræðu,“ sagði Guðlaugur Þór sem rifjaði upp orðalag umsóknarinnar frá 16. júlí 2009. „Það er verið að kjósa um það hvort við eigum að sækja um aðild að Evrópusambandinu,“ sagði Guðlaugur Þór. Bannað að plata Hann sagði svo marga hafa gleymt því hvað felst í að vera í Evrópusambandinu. Beindi svo orðum sínum að Kristrúnu Frostadóttur. Hann hefði hlakkað til að taka umræðuna en rekið sig „almennt minnisleysi“, „jafnvel hjá hámenntuðu fólki sem að kennir þessi mál,“ varðandi hvað það felst í því að vera í Evrópusambandinu. „En ég ætla að taka hér nokkur orð fólks sem að hefur sagt mjög skynsamlega hluti. Hér er ég að vísa í forsætisráðherrann okkar, sem sagði: „Ég veit að fólk heldur að ég sé að blöffa með þetta. Það er bannað að plata. Það er bannað að plata í þessu starfi. “ Þetta sagði hún í ágúst (2024). Og hún sagði líka mjög skýrt við kjósendur: „Í Evrópumálunum hef ég verið mjög skýr á því að ég tel að þetta sé ekki rétti tíminn til að fara í þessa vegferð.“ Og svo sagði hún, ekki bara í þessu títtnefnda viðtali sem vitnað er til, Chess after dark, heldur sömuleiðis ræddi hún þetta við Morgunblaðið: „Það sem gerist svo ítrekað með Evrópusambandið er að þegar það gengur illa, þegar það er komin verðbólga, þegar það eru háir vextir, þá byrjar fólk að vilja ganga inn í Evrópusambandið.“ Frétt af mbl.is „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Snýst ekki um efnahagsástandið Hún útskýrir það síðan mjög vel í þessu viðtali, sem og viðtali við Morgunblaðið, að þetta snýst ekki um efnahagsástandið. Við erum ekki að laga efnahagsástandið með því að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Hún gat ekkert verið skýrari. Þetta eru ekki mín orð, þetta eru orð Kristrúnar og ég er hjartanlega sammála henni. Svo sagði hún líka: „Ég veit bara að það er rosalega mikil vegferð að fara í það ferli og það er líka vegferð sem þarf að vera mikil samstaða um hjá þjóðinni. Eins og dæmin hafa sýnt, þú gengur ekki svo auðveldlega út úr Evrópusambandinu.“ Ég sagði þetta ekki. Kristrún sagði þetta en ég er sammála hverju einasta orði. En síðan gerðist eitthvað og hún sagði við erlenda fjölmiðla í júlí (2026): „Ég tel þetta frábæran tíma fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið vegna þeirrar stöðu sem er uppi í alþjóðamálum.“ Það gerðist eitthvað. En það eru fleiri sem hafa mælt af skynsemi, hér áður fyrr,“ sagði Guðlaugur Þór og vitnaði í skrif Pawels Bartoszek, nú formann utanríkismálanefndar, um Evrópurmálin fyrir rúmum áratug. Felur í sér aðild „ESB lítur ekki svo á að við séum „bara að skoða“. Aðildarumsókn að ESB felur í sér að landið vill ganga í ESB,“ hafði Guðlaugur Þór eftir Pawel. „Það hefur margt breyst í alþjóðamálunum, ekki þetta,“ sagði Guðlaugur Þór. „Þetta ekki snýst ekki bara um að láta samningamenn Íslands sitja fundi í Brussel. Stjórnsýslan öll þarf að vinna að þessari umsókn. Hárrétt. Margt breyst í alþjóðamálunum, ekki þetta,“ hafði Guðlaugur Þór jafnframt eftir Pawel. Tengdar fréttir Ísland og ESB Unnu álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum Dugar 49% já til að viðræður hefjist? Dýrt fyrir Ísland að ganga í ESB Konur óákveðnari en karlar Íslandi beri skylda til að endurmeta stöðuna » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Glímir enn og aftur við alvarleg meiðsli Kristrún skipt um skoðun Munnþurrkufáni gæti verið lögbrot OpenAI hægir á þróun eftir netárás gervigreindar Unnu álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum Umræðan Aftur heim Féll Ódysseifur í freistni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Unnu álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum Vaxtahækkun líklegust að mati stærstu bankanna Víða léttskýjað en þokuloft við ströndina „Sterk fælingarskilaboð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Bankinn breytti reglunun Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Þjófnaður og líkamsárás í matvöruverslun Vilja ekki kalla saman þing til lækkunar VSK „Ef þetta heldur áfram svona þá drep ég hann“ Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Nýjast á mbl.is » Glímir enn og aftur við alvarleg meiðsli Kristrún skipt um skoðun Munnþurrkufáni gæti verið lögbrot OpenAI hægir á þróun eftir netárás gervigreindar Unnu álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum Umræðan Aftur heim Féll Ódysseifur í freistni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Búið að losa bílinn frá tengivagninum Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Flutningabíll valt á hliðina Dýrt fyrir Ísland að ganga í ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Bankinn breytti reglunun Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Þjófnaður og líkamsárás í matvöruverslun Vilja ekki kalla saman þing til lækkunar VSK „Ef þetta heldur áfram svona þá drep ég hann“ Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi

Share this article