- What: Geese hunting season starts in Iceland
- Impact: Hunters are allowed to hunt certain types of geese
Innlent | Morgunblaðið | 19.8.2026 | 16:14 Gæsastofnarnir sagðir í góðu standi Skotveiðimenn munda haglabyssurnar í átt að aðvífandi gæsahópi og labraborhundurinn fylgist árvökull með, enda hans að sækja fellda bráð. mbl.is/Ingó Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Gæsaveiðitímabilið hefst á morgun, 20. ágúst og verður þá heimilt að veiða grágæs og heiðagæs. Blesgæs sem kemur við hér á landi á leið sinni til og frá varpstöðvunum á Vestur-Grænlandi er aftur á móti friðuð, en stofninn hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár. Helsingi er þriðja gæsategundin sem leyft er að veiða hér á landi og staðfesti Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, heimild til veiða á helsingja í haust. Samkvæmt því verður leyft að veiða helsingja frá 1. september til 20. september nk. sem er 5 dögum lengri veiðitími en í fyrra. Góður varpárangur helsingja Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir m.a. að á Íslandi hafi varpárangur helsingjastofnsins verið góður á undanförnum árum og stofninn sýnt jákvæða þróun. Það hafi styrkt rök fyrir aukinni veiði innan þeirra marka sem samkomulag íslenskra og breskra stjórnvalda setji um veiðar á helsingja. Þá sé leitast við að draga úr óánægju bænda með ágang fuglanna með því að lengja veiðitímann. Ráðherra hefur því fallist á tillögur Náttúruverndarstofnunar um að veiðitímabilið árið 2026 verði lengt um fimm daga, en að áfram verði sölubann á helsingja. Helsingjarnir íslensku halda til í Vestur-Skaftafellssýslu en meginstofn helsingja er með varpstöðvar á Austur-Grænlandi og er íslenski stofninn ættaður þaðan. Helsingjarnir koma við hér á landi á leið sinni til og frá varpstöðvunum vor og haust. Skotveiðimenn bjartsýnir Áki Ármann Jónsson, formaður SKOTVÍS, segir í samtali við Morgunblaðið að skotveiðimenn séu bjartsýnir í aðdraganga veiðitímabilsins. Vor og sumar hafi verið góð og ekkert vorhret hafi sett strik í reikninginn. Gæsastofnanir sem verpa hér á landi komi því vel undan sumri. Stofn heiðagæsa er sterkur og segir Áki Ármann hann í vexti, en áætlað er að í stofninum séu 400.000-500.000 fuglar. Flestar heiðagæsir hafa vetrarsetu á Bretlandseyjum og þær fljúga venjulega af landi brott í október. Síðustu vikurnar heldur hún til á láglendi, en framan af veiðitímabilinu herja veiðimenn á heiðagæsina á heiðum uppi. Óvissa í stofnstærðarmati Stofn grágæsar er mun minni en heiðagæsar, talinn vera a.m.k. 60.000-70.000 fuglar. Þó segir Áki Ármann nokkra óvissu í stofnmatinu, en gæsirnar hafa jafnan verið taldar á Bretlandseyjum og alltaf á sömu slóðum. Nú er hins vegar svo komið að gæsirnar eru farnar að færa sig norðar, út í Hjaltlandseyjar og Orkneyjar og eru minna á meginlandinu. Er það rakið til loftslagsbreytinga. Nú er verið að endurmeta stofnstærð grágæsar sem talinn er vera í góðum vexti. Segir Áki Ármann að sumir telji að stofninn sé mun stærri en að ofan greinir, sumir álíti að í stofninum geti verið 80.000-100.000 fuglar. Grágæs fer seint eða ekki Einnig fer grágæsin nú síðar á haustin af landi brott en venjan var og er hún farin að hafa vetursetu hér á landi í mun meira mæli en áður var. Þetta setur nokkurt strik í talningareikninginn. Þess vegna hefur verið gripið til þess ráðs að telja gæsirnar hér á landi á sama tíma og talið er á Bretlandseyjum. „Það hefur verið vandamál að grágæsin er farin að fara svo seint að hún er farin að blandast við bresku gæsirnar, þannig að það hafa verið skekkjur í talningum út af því,“ segir Áki Ármann. Hann segir að margir veiðimenn hugsi sér gott til glóðarinnar og séu farnir að huga að því að fara á heiðar upp strax í upphafi vertíðarinnar. Margir fari þó ekki fyrr en í fyrstu viku september, enda þá fuglinn orðinn stærri og minna um blóðfjaðrir í hami fuglanna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Trump segir Norður-Kóreu eiga 57 kjarnorkuvopn Leikmaður Liverpool skoraði sjálfsmörk viljandi Gæsastofnarnir sagðir í góðu standi „Fullkomið getuleysi í efnahagsmálum“ Bestu snyrtivörurnar fyrir augabrúnirnar Umræðan Aftur heim Féll Ódysseifur í freistni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Ásgeir: Hækkun á verðbólguvæntingum gengur til baka „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Myndskeið: Búið að losa bílinn frá tengivagninum Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Bankinn breytti reglunun Stal ógrynni af kjúklingabringum Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Flutningabíll valt á hliðina Þjófnaður og líkamsárás í matvöruverslun „Ef þetta heldur áfram svona þá drep ég hann“ Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Nýjast á mbl.is » Trump segir Norður-Kóreu eiga 57 kjarnorkuvopn Leikmaður Liverpool skoraði sjálfsmörk viljandi Gæsastofnarnir sagðir í góðu standi „Fullkomið getuleysi í efnahagsmálum“ Bestu snyrtivörurnar fyrir augabrúnirnar Umræðan Aftur heim Féll Ódysseifur í freistni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Bankinn breytti reglunun Stal ógrynni af kjúklingabringum Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Flutningabíll valt á hliðina Þjófnaður og líkamsárás í matvöruverslun „Ef þetta heldur áfram svona þá drep ég hann“ Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi