- What: New coach joins football team
- Impact: Potential changes in team strategy and performance
KA tilkynnti nú síðdegis á vefsíðu sinni að Eiður Smári Guðjohnsen væri kominn inn í þjálfarateymi félagsins. Illa hefur gengið hjá KA-mönnum í Bestu deild karla í fótbolta í sumar og liðið er í næstneðsta sæti með 16 stig eftir 19 umferðir. Í tilkynningu KA-manna segir að Eiður muni vinna með Hallgrími Jónassyni þjálfara KA og Atli Sveinn Þórarinsson sem hefur verið aðstoðarþjálfari stigi til hliðar og einbeiti sér að þjálfun 2. flokks og að afreksstarfi innan KA. Á vef KA er haft eftir Hjörvari Maronssyni formanns knattspyrnudeildar KA að ráðningin á Eiði Smára endurspegli metnað félagsins. „Við erum gríðarlega ánægð með að fá Eið Smára til liðs við okkur. Hann býr yfir gríðarlegri reynslu og þekkingu á knattspyrnu sem við teljum að muni nýtast okkur vel í þeim mikilvægu verkefnum sem fram undan eru. Að fá mann með hans bakgrunn og reynslu inn í þjálfarateymið eru skýr skilaboð um þann metnað sem við höfum fyrir KA. Það er hörð barátta fram undan og við ætlum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að ná okkur úr þeirri erfiðu stöðu sem við höfum komið okkur í,“ segir Hjörvar.