Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Eik og Lands­byggð skipu­leggja endur­bætur á Kvosinni

Read Full Article →

Eik fasteignafélag og Landsbyggð hafa tekið höndum saman um mótun framtíðarsýnar fyrir Kvosina norðan Austurstrætis í miðborg Reykjavíkur. Með samstarfinu er horft á byggingar og borgarrými sem eru í eigu Eikar og Landsbyggðar sem eina heild. Í fréttatilkynningu frá Eik segir að kannað verði hvernig hægt sé að tengja svæði og byggingar betur saman, styrkja gönguleiðir í gegnum Kvosina og skapa ný og skjólgóð almenningsrými. Verkefnið verður kynnt á sýningu sem opin er öllum í gamla Landsbankahúsnæðinu við Austurstræti 11 á laugardag 22. ágúst frá klukkan 12-18. „Kvosin er hjarta Reykjavíkur og þar leynast einstök tækifæri. Með því að horfa út fyrir mörk einstakra fasteigna og hugsa svæðið sem heild er hægt að skapa betri tengingar, meira mannlíf og enn áhugaverðari miðborg. Okkur finnst mikilvægt að framtíðarsýn Kvosarinnar byggi á þeim sérkennum og gæðum sem fyrir eru; sögu staðarins, byggðinni og þeirri starfsemi sem þegar skapar svæðinu sterka ímynd,“ segir Júlía Brekkan hjá Eik fasteignafélagi. Í stað þess að vinna með einstaka byggingarreiti er markmið samstarfs Eikar og Landsbyggðar að finna sameiginlegar lausnir sem geta styrkt allt svæðið. Horft inn í gamla Landsbankann í nýju fyrirhuguðu skipulagi. © Aðsend mynd (AÐSEND) Áhersla er meðal annars lögð á skýrari og aðgengilegri gönguleiðir, virkari jarðhæðir og rými þar sem fólk getur dvalið, hist og notið miðborgarinnar. Með opnari tengingum milli gatna skapast jafnframt tækifæri til að draga fólk inn á svæðið og inn í byggingar sem áður voru ekki opnar almenningi. „Við sjáum mikið tækifæri í því að nálgast þróun Kvosarinnar með þessum hætti. Sögulegar byggingar eiga ekki aðeins að varðveitast heldur fá nýtt líf og nýtt hlutverk. Með góðri samvinnu er hægt að tengja saman fortíð og framtíð og skapa stað sem fólk vill sækja, dvelja á og koma aftur til,“ segir Leó Árnason hjá Landsbyggð. Eik og Landsbyggð vinna að verkefninu í samráði við Reykjavíkurborg, Batteríið arkitekta og Minjastofnun. Eik hefur um árabil átt og rekið sögufrægar atvinnueignir í Kvosinni, meðal annars við Pósthússtræti, Austurstræti og Hafnarstræti. Landsbyggð festi kaup á Landsbankahúsinu og húseignum við Hafnarstræti á síðasta ári með það fyrir augum að endurvekja húsin sem lifandi hluta af miðborg Reykjavíkur.

Share this article