Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega í kjölfar nýjustu vaxtahækkunar Seðlabanka Íslands og segir þróun verðbólgu og vaxta hafa orðið þvert á þau markmið sem ríkisstjórnin hafi lagt upp með. Hún bendir jafnframt á að Seðlabankinn hafi sjálfur dregið fram þátt hins opinbera í verðbólguþróuninni. Viðskiptablaðið greindi frá því fyrr í dag að samkvæmt mati bankans megi aukna verðbólgu fyrst og fremst rekja til hækkunar opinberra gjalda. Þá hefur Seðlabankinn einnig bent á að launa- og verðhækkanir hafi verið mestar hjá hinu opinbera. Sjá einnig Aukin verðbólga „fyrst og fremst“ vegna hækkunar opinberra gjalda Ásdís segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hafa verið kosna til að stuðla að lægri verðbólgu og vöxtum. Sjá einnig Launa- og verðhækkanir mestar hjá hinu opinbera „Hvorugt hefur gerst, verðbólga hefur aukist og vextir hækkað frá því ríkisstjórnin tók við – þvert á yfirlýsingar forsætisráðherra um annað,“ segir hún. Kópavogur takmarkaði hækkanir Ásdís segir Kópavog hafa reynt að leggja sitt af mörkum með því að halda aftur af gjaldskrárhækkunum. „Kópavogur steig þau skref í vor að takmarka gjaldskrárhækkanir á barnafjölskyldur við 2,5% á árinu 2026. Með þessum aðgerðum var Kópavogur að leggja sitt af mörkum til að ná tökum á verðbólgunni og um leið standa vörð um ráðstöfunartekjur barnafjölskyldna í Kópavogi,“ segir Ásdís. Hún telur að ríkisstjórnin eigi að fylgja sama fordæmi. „Það væri óskandi ef ríkisstjórnin myndi stíga fram með góðu fordæmi enda mikið í húfi fyrir íslenskt samfélag,“ segir Ásdís.