Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli

  • What: Earthquakes detected under Mýrdalsjökull
  • Impact: No immediate threat reported
Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.8.2026 | 21:25 Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Myndin er tekin við mæli Veðurstofunnar við Litlu Hvola í Höfðabrekkuafrétti. mbl.is/Jónas Erlendsson Markús Ívar Halldórsson Sonja Sif Þórólfsdóttir Setja bókamerki Tengdar fréttir Katla Vatnshæð í ánni gæti hækkað á næstu dögum Hlaup í Múlakvísl og mikil gasmengun Katla minnir á sig Gáfust upp á búskapnum vegna Kötlu Segir endalokin nálgast: „Gæti orðið áramótagos“ » Fleiri tengdar fréttir Óróapúlsar hafa mælst undir Mýrdalsjökli í dag. Náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands segir þó ekkert benda til þess að von sé á mjög stóru hlaupi. „Það var um klukkan sex í morgun, um hádegi og svo um eitt, tvö leytið. Núna er svo aðeins stærri óróapúls en mér sýnist hann nú mögulega vera að lognast út af,“ segir Jarþrúður Ósk Jóhannesdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Í kjölfar púlsanna hafi rafleiðni í Múlakvísl hækkað sem gefur til kynna að hlaup sé hafið eða að hefjast. Skjálftarnir sem orðið hafa í eldstöðinni í dag eru allir vel undir tveimur að stærð. Undir Mýrdalsjökli hvílir eldstöðin Katla, sem er ein af stærstu og virkustu megineldstöðvum landsins. Frétt af mbl.is Vatnshæð í ánni gæti hækkað á næstu dögum Frétt af mbl.is Hlaup í Múlakvísl og mikil gasmengun Óróapúlsarnir eru líklega að lognast út af. mbl.is/Jónas Erlendsson Virðist vera að lognast út af „Það gæti verið að það sé hlaupvatn að fara fram hjá þessum mælum núna og þá sést það með nokkurra klukkutíma seinkun á mælunum eins og hjá þjóðveginum,“ segir Jarþrúður. Þá gæti verið að eitthvað hlaupvatn sé að fara af stað um þessar mundir. „Við vitum ekki nákvæmlega hvað er að gerast en við munum sjá það betur eftir nokkra klukkutíma. En þetta lítur út fyrir að vera að lognast út af og við fylgjumst að sjálfsögðu vel með gangi mála,“ segir Jarþrúður. Miða við hlaupið fyrir tveimur árum Óróapúlsarnir í kvöld eru ákafari en síðustu púlsar en benda þó ekki til þess að það sé svakalega mikið vatn að fara af stað. „Við erum að miða við einn atburð fyrir tveimur árum og hversu há gildin voru þá og þetta er ennþá frekar rólegt miðað við það,“ segir hún og bætir við að sérfræðingar haldi ró sinni á meðan vatnshæðin hækki ekki mikið. Atburðurinn sem Jarþrúður á við er gríðarstórt jökulhlaup í Skálm austan Mýrdalsjökuls sem varð í lok júlí 2024. Þá sögðu sérfræðingar að óróakviðan í Mýrdalsjökli bæri öll þess merki að koma frá örlitlu eldgosi undir jöklinum. Raunar hafa jarðvísindamenn ítrekað það síðar í viðtölum við Morgunblaðið að þeir telji líklegast að lítið eldgos hafi orðið í Kötlu þá. Páll Einarsson, prófessor emeritus við jarðvísindadeild Háskóla Íslands, sagði þá hlaupið svipa til jökulhlaupa úr Kötlu árin 1955, 1999 og 2011. Frétt af mbl.is „Ber öll merki þess að koma frá litlu eldgosi“ Frétt af mbl.is Jökulhlaup í Skálm: Þetta er það sem við vitum Áköf hrina varð í vetur Áköf skjálftahrina varð í Kötlu í vetur. Þá sagði Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur við Morgunblaðið að ekki væri óeðlilegt ef eldgos gæti hafist í framhaldinu. „Hún er náttúrlega löngu komin á tíma og getur komið hvenær sem er. Það er þó orðin svona ákveðin hefð að hún hreyfi sig meira á haustin þegar hún finnur fyrir því að jökullinn þynnist. Þá verður spennulosun og þessir skjálftar voru svolítið stórir,“ sagði Ármann. Tugir skjálfta urðu í jöklinum og mældist sá stærsti 4,4 að stærð. Fjórir aðrir voru yfir þremur að stærð í þeirri hrinu. Frétt af mbl.is Fyrir löngu kominn tími á eldgos í Kötlu Tengdar fréttir Katla Vatnshæð í ánni gæti hækkað á næstu dögum Hlaup í Múlakvísl og mikil gasmengun Katla minnir á sig Gáfust upp á búskapnum vegna Kötlu Segir endalokin nálgast: „Gæti orðið áramótagos“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Norska liðið skrefi nær Meistaradeildinni Flugvöllurinn opnaður aftur Mikill liðsstyrkur til Íslandsmeistaranna Indó hækkar vexti Umræðan Aftur heim Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Atburðir í móðu: „Hann átti bara að fara á spítala“ Kristrún skipt um skoðun Áfellisdómur yfir hagstjórninni „Fullkomið getuleysi í efnahagsmálum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Nýjast á mbl.is » Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Norska liðið skrefi nær Meistaradeildinni Flugvöllurinn opnaður aftur Mikill liðsstyrkur til Íslandsmeistaranna Indó hækkar vexti Umræðan Aftur heim Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Ásgeir: Hækkun á verðbólguvæntingum gengur til baka Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi

Share this article