Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Flestir svarenda telja nikótínpúða skaðlega

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 19.8.2026 | 22:30 Flestir svarenda telja nikótínpúða skaðlega Af heildinni sögðust 16,5% nota nikótínpúða að staðaldri og 9,8% nota rafrettur með nikótíni. Ljósmynd/Colourbox Ómar Friðriksson [email protected] Setja bókamerki „Ísland hefur verið í fararbroddi í tóbaksvörnum meðal þjóða heims en er nú eftirbátur hvað varðar notkun nikótínvara.“ Þetta er staðhæft í greinargerð með frumvarpsdrögum heilbrigðisráðherra til laga um nikótín- og tóbaksvarnir, sem birt var í samráðsgáttinni fyrr í sumar. Vísað er þessu til stuðnings í niðurstöður rannsókna Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar frá síðasta ári um notkun nikótínvara meðal ungmenna á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum. Þar kom í ljós að 33% 18-24 ára ungmenna á Íslandi nota nikótínpúða og er hlutfallið hvergi hærra. Notkun ungmenna á rafrettum er jafnframt ein sú mesta meðal ungmenna hér á landi. Meginmarkmiðið með frumvarpinu er að draga úr notkun tóbaks- og nikótínvara, einkum meðal ungmenna, og eins og fram hefur komið eru lagðar til ýmsar hömlur og takmarkanir m.a. á sölu nikótínvara sem innihalda bragðefni og á að eftirlit verði eflt. Borist hafa tæplega 30 umsagnir við drögin í samráðsgátt og sýnist sitt hverjum um þær leiðir sem lagt er til að farnar verði. Í umsögn Artasan ehf., fyrirtækis sem annast markaðssetningu og sölu á lausasölulyfjum og heilsuvörum, sem birt var í gær, er lögð áhersla á að greint sé skýrt á milli nikótínlyfja og almennra nikótínvara svo sem nikótínpúða. Á sama tíma og mikilvægt sé að draga úr nikótínneyslu og vernda lýðheilsu þurfi þeir sem vilja hætta að reykja eða nota nikótín að hafa greiðari aðgang að nikótínlyfjum. Leggur Artasan til að metnir verði kostir þess að heimila sölu tiltekinna nikótínlyfja utan apóteka, líkt og leyft er annars staðar á Norðurlöndum. Umsögn Artasan fylgja niðurstöður úr nýrri könnun sem fyrirtækið fékk Maskínu til að gera um viðhorf og notkun almennings á nikótínvörum. 2.255 einstaklingar, 18 ára og eldri, tóku þátt í könnuninni sem gerð var seint í seinasta mánuði. Könnunin leiðir í ljós að þrátt fyrir umtalsverða notkun nikótínpúða og annarra nikótínvara meðal landsmanna töldu 89% allra svarenda nikótínpúða skaðlega fyrir heilsu einstaklinga og 74% sögðust hafa miklar áhyggjur af vaxandi notkun þeirra meðal ungs fólks. 56% telja púðana mjög skaðlega fyrir heilsu einstaklinga og 33% frekar skaðlega. „Niðurstöðurnar sýna að verulegur meirihluti landsmanna telur þörf á auknum stuðningi við þá sem vilja hætta tóbaks- eða nikótínnotkun. Alls töldu 64% svarenda að stjórnvöld ættu að leggja meiri áherslu á að hjálpa fólki að hætta að reykja og 71% taldi að stjórnvöld ættu að leggja meiri áherslu á að hjálpa fólki að hætta notkun nikótínpúða,“ segir í umsögninni. 57% sögðust vera sammála því að nikótínlyf ættu að vera fáanleg utan lyfjabúða, t.d. í matvöruverslunum eða söluturnum. 18% voru ósammála því. Af heildinni sögðust 16,5% nota nikótínpúða að staðaldri og 9,8% nota rafrettur með nikótíni. Rúm 6% reykja sígarettur að staðaldri og 4,3% nota nikótínlyf. 2,2% nota neftóbak og lægra hlutfall notar aðrar nikótínvörur á borð við vindla og snus. Af könnuninni má ráða að um 68% landsmanna nota hvorki nikótínvörur né nikótínlyf. Þegar svörin eru brotin niður eftir hópum kemur í ljós að notkun nikótínpúða er mun algengari meðal karla (20,3%) en kvenna (12,4%). Notkun púðanna er líkt og búast mátti við mest í yngri aldurshópunum: 32,4% meðal 25-29 ára og 24,9% meðal fólks sem er yngra en 25 ára. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fiskur að hellast inn í Blöndu Flestir svarenda telja nikótínpúða skaðlega Lovísa hættir í körfubolta Væntingar hjá Alvotech þrátt fyrir tekjusamdrátt Atlético byrjar á sigri Umræðan Aftur heim Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Áfellisdómur yfir hagstjórninni Ásgeir: Hækkun á verðbólguvæntingum gengur til baka Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Nýjast á mbl.is » Fiskur að hellast inn í Blöndu Flestir svarenda telja nikótínpúða skaðlega Lovísa hættir í körfubolta Væntingar hjá Alvotech þrátt fyrir tekjusamdrátt Atlético byrjar á sigri Umræðan Aftur heim Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Unnu álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum „Ég hef aðeins áhyggjur af því“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi

Share this article