Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hið minnsta sex týndu lífi í loftárásum á Kyiv

Read Full Article →

Að minnsta kosti sex voru drepnir og 24 til viðbótar særðust í flugskeytaárás Rússlandshers á úkraínsku höfuðborgina Kyiv og nágrannahéruð í gærkvöld og nótt. Borgarstjórinn Vitali Klitschko ræðir við íbúa Kyiv eftir loftárás Rússa í maí.EPA / SERGEY DOLZHENKO Reuters-fréttaveitan segir vel á annan tug sprenginga hafa kveðið við í miðborginni snemma nætur. Borgarstjórinn Vitali Klitschko segir langdrægum eldflaugum hafa verið beint að þremur hverfum Kyiv og hæft íbúðarblokkir og fleiri byggingar sem sumar standi enn í ljósum logum. Pólski flugherinn kveðst hafa sent orrustuþotur af stað í nótt til varnar lofthelginni. Pólland er NATÓ-ríki og á landamæri að Úkraínu.

Share this article