Innlent | Morgunblaðið | 20.8.2026 | 9:00 Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Svona verður umhverfið á Stjórnarráðsreit eftir uppbyggingu samkvæmt vinningstillögunni. Tölvumynd/T.ark og SP(R)INT Studio Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Áform um uppbyggingu á svokölluðum Stjórnarráðsreit eru á áætlun og útlit fyrir að hún geti hafist innan tíðar. Skipulagslýsing fyrir reitinn var auglýst í sumar og athugasemdir sem bárust virðast ekki munu tefja ferlið. Búist er við að tillaga að nýju deiliskipulagi verði kynnt í umhverfis- og skipulagsráði nú í haust. Áætlanir gera ráð fyrir að deiliskipulag geti verið samþykkt í desember á þessu ári. Verði áformin að veruleika bætist við talsvert af íbúðarhúsnæði á þessum eftirsótta stað auk þess sem rými verða fyrir ýmsa þjónustu. Þá verður nýtt torg miðpunktur svæðisins. Frétt af mbl.is Stjórnarráðsreitur á dagskrá á ný Huga þarf að öryggismálum „Við kjörnir fulltrúar fögnum því að hreyfing sé að komast á þetta mál. Það hefur verið langan tíma í vinnslu,“ segir Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs. Eins og kom fram í umfjöllun Morgunblaðsins í maí afmarkast skipulagssvæðið af fjórum götum í miðborginni; Lindargötu, Ingólfsstræti, Skúlagötu og Klapparstíg. Nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir blandaðri notkun Stjórnarráðs Íslands, opinberrar þjónustu, almennrar þjónustu, menningarstarfsemi og búsetu. Þegar eru mörg ráðuneyti til húsa á reitnum og í næsta nágrenni auk annarrar opinberrar starfsemi. Guðný María segir að við skipulagið þurfi að huga vel að öryggismálum vegna þeirrar starfsemi sem þarna er. Mikilvægur reitur í miðborg Fulltrúar í umhverfis- og skipulagsráði lýstu mikilli ánægju með framgang málsins á fundi ráðsins nýlega. Meirihlutinn bókaði að þarna gæfist einstakt tækifæri til að skapa blandaða og lifandi miðborgarbyggð þar sem stjórnsýsla, þjónusta, menningarstarfsemi og búseta færi saman. Fulltrúi Samfylkingar fagnaði þeim metnaði sem byggi í heildarskipulagningu reitsins og bættu aðgengi að almenningsrýmum. „Þetta er svakalega fallegur og mikilvægur reitur í miðborginni og það verður mjög spennandi að fara að horfa heildstætt á uppbygginguna á þessu svæði,“ segir Guðný Margrét. Reitnum verður skipt upp í nokkur uppbyggingarsvæði. Á svæðum A og B er gert ráð fyrir skrifstofuhúsnæði fyrir ráðuneyti og ríkisstofnanir. Svæði C og D eru ætluð opinberri starfsemi og þjónustu sem ætlað er að virkja borgarrýmið. Á svæðum E og G, sem liggja við Lindargötu, austast á reitnum, verða íbúðir en einnig getur verið verslun og þjónusta á jarðhæðum. Á svæði F, sem er á mörkum Skúlagötu og Klapparstígs, er gert ráð fyrir stóru íbúðarhúsi eða hóteli. Frétt af mbl.is Skrifstofur víkja fyrir opnum rýmum Breytingar á gatnakerfinu Skipulagsvinnan byggist á vinningstillögu T.ark og SP(R)INT Studio, úr samkeppni sem haldin var árið 2018 um framtíð Stjórnarráðsreitsins. Nýja skipulagið mun kalla á breytingar á gatnakerfi svæðisins. Þannig verður Smiðjustígur framlengdur að Skúlagötu en hann nær í dag aðeins frá Hverfisgötu niður að Lindargötu. Skuggasund verður sömuleiðis framlengt að Skúlagötu en almennur akstur um þá götu verður lagður af. Nýtt opið torg verður við gatnamót Sölvhólsgötu og Skuggasunds. Þar á að vera miðpunktur svæðisins en Sölvhólsgata verður meginæð reitsins. Inn á milli bygginga á reitnum eiga að vera grænir garðar og hugguleg svæði fyrir íbúa, fólk sem sækir vinnu á svæðinu og gesti miðborgarinnar. Tíu ára saga Í október 2016 var samþykkt að efna til samkeppni um nýtt skipulag Stjórnarráðsreits í tengslum við aldarafmæli fullveldis Íslands 2018. Tillaga T.ark og SP(R)INT Studio hlaut fyrsta sæti í samkeppni og hafa höfundar tillögunnar unnið að útfærslu hennar í skipulagi. „Heildarlausn er skýr, raunhæf og látlaus og fellur vel að byggð sem fyrir er. Skipulag svæðisins er vandað með rólegu yfirbragði og vel leystum útisvæðum sem eru í góðum tengslum við byggingar,“ sagði m.a. í rökstuðningi dómnefndar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Brotaþoli í Reykholtsmáli gefur skýrslu fyrir dómi Erlendir miðlar banka á dyrnar Mikið undir hjá Víkingum Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Hreyfingin snýst um meira en bara árangur Umræðan Varnir Íslands eru traustar Blindi bletturinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Kristrún skipt um skoðun Ásgeir: Hækkun á verðbólguvæntingum gengur til baka „Ef þetta heldur áfram svona þá drep ég hann“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Danska konan fær 225 milljónir Halldóra tekjuhæst sveitastjórnarmanna Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Eldur á iðnaðarsvæði í Hellnahverfi Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Verða áfram í sölu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Bíða þess enn að lögregla útskýri allar beyglurnar á bílnum Segja umsamin ákvæði óáreiðanleg Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nýjast á mbl.is » Brotaþoli í Reykholtsmáli gefur skýrslu fyrir dómi Erlendir miðlar banka á dyrnar Mikið undir hjá Víkingum Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Hreyfingin snýst um meira en bara árangur Umræðan Varnir Íslands eru traustar Blindi bletturinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugvöllurinn opnaður aftur Myndskeið: Búið að losa bílinn frá tengivagninum Ásgeir: Hækkun á verðbólguvæntingum gengur til baka Vatnshæð í ánni gæti hækkað á næstu dögum Mest lesið Í gær Í vikunni Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Danska konan fær 225 milljónir Halldóra tekjuhæst sveitastjórnarmanna Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Eldur á iðnaðarsvæði í Hellnahverfi Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Verða áfram í sölu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Bíða þess enn að lögregla útskýri allar beyglurnar á bílnum Segja umsamin ákvæði óáreiðanleg Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum