Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hnúfubakur stal senunni við Sólfarið

  • What: Whale sightings near Sólfarið in Iceland
  • Impact: No security relevance
Read Full Article →

Hnúfubakur hefur synt í sjónum rétt við Sólfarið og Hörpu í dag og vakið talsverða eftirtekt. Katrín Georgsdóttir, umhverfis- og gæðastjóri hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu, segir að hvalir komi stundum svo nálægt landi, en það sé ekki algengt. Elding heldur dagbók yfir hvalina og þegar sérfræðingar fyrirtækisins bera saman myndir seinna í dag kemur í ljós hvort um góðkunningja sé að ræða. Sumir hvalir sjáist aftur og aftur frá hvalaskoðunarskipunum. Hvalurinn lék listir sínar í dag og virtist ekki láta athyglina á sig fá. Bragi Valgeirsson tökumaður fréttastofu náði þessum myndum um hádegisbil.

Share this article