Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kaupa 49% í Fly Play Europe á Möltu fyrir 83 milljónir

Read Full Article →

Icelandair hefur í dag gengið frá kaupum á 49% eignarhlut í Fly Play Europe Holdco ehf. („FPE“), af FPE hs., sjóði í rekstri Ísafold Capital Partners hf., en dótturfélag þess, Fly Play Europe Limited á Möltu er með maltneskt flugrekstrarleyfi (AOC). Samkvæmt kaupsamningi kaupir Icelandair 49% hlut í FPE og nemur kaupverðið 686 þúsund dölum eða 83,4 milljónum króna. Samhliða viðskiptunum hefur hluthafasamkomulag verið gert, samið um fjármögnun og möguleika Icelandair til að auka eignarhlut sinn í félaginu síðar. Viðskiptin eru m.a. háð fyrirvara um að samkomulag náist við maltnesk flugmálayfirvöld um áframhaldandi notkun flugrekstrarleyfis FPE. Kaupin eru í samræmi við viljayfirlýsingu sem Icelandair tilkynnti um þann 1. apríl síðastliðinn. Icelandair segir í tilkynningu að með viðskiptunum öðlist flugfélagið aðgang að viðbótarflugrekstrarleyfi innan Evrópu sem muni auka sveigjanleika félagsins, skapa möguleika til einföldunar og hagræðingar í flugrekstrinum á Íslandi en á sama tíma styðja við áframhaldandi uppbyggingu á alþjóðlegri starfsemi og skapa ný viðskiptatækifæri. „Viðskiptin eru hluti af stefnu Icelandair um að auka samkeppnishæfni, fjölbreytni tekjustoða og rekstrarsveigjanleika til lengri tíma. Sjá einnig Kaupa 49% í Fly Play Europe á Möltu fyrir 83 milljónir „Að eignast hlut í flugrekstrarleyfi á Möltu er fyrst og fremst hugsað til þess að auka sveigjanleika í rekstri, styrkja samkeppnishæfni Icelandair og skapa ný tækifæri – allt til þess að tryggja áframhaldandi uppbyggingu tengimiðstöðvarinnar í Keflavík og þar með störf og öflugt starfsumhverfi í flugrekstri á Íslandi til framtíðar.“ segir Bogi Nils Bogason , forstjóri Icelandair. Icelandair segir viðskiptin hafa óveruleg áhrif á afkomu og efnahag Icelandair á árinu 2026 en fela í sér tækifæri til lengri tíma litið. Arma Advisory voru ráðgjafar Icelandair við kaupin.

Share this article