Security News

Cybersecurity news aggregator

🔒
LOW News Viðskiptablaðið

Kvikmyndahús vilja banna snjallgleraugu Meta

  • What: UK cinema association considers banning Meta smart glasses
  • Impact: Concerns over privacy and unauthorized filming
Read Full Article →

Samtök breskra kvikmyndahúsa, UK Cinema Asociation, íhuga nú að banna eða takmarka notkun snjallgleraugna frá Meta vegna áhyggna um að þau verði notuð til að taka upp kvikmyndir með ólöglegum hætti. Á vef Guardian segir að gleraugun hafi þegar verið bönnuð á ýmsum veitingastöðum, krám og í leikhúsum vegna persónuverndar. Snjallgleraugu Meta, sem kosta um 60 þúsund krónur í Bretlandi, hafa sætt vaxandi gagnrýni vegna persónuverndar og hafa sumir kallað þau njósnagleraugu. Gleraugun eru einnig háþróuð og notast við gervigreind til að aðstoða fólk með sjón- eða heyrnarskerðingu. Sjá einnig App­le leggur aukna áherslu á snjall­gler­augu Meta hefur þegar sagt að lítið blikkandi LED-ljós kvikni þegar myndavél gleraugnanna er notuð til upptöku og segist fyrirtækið notast við tækni sem kemur í veg fyrir að notendur geti hulið ljósið á meðan upptaka fer fram. Þrátt fyrir það hafa komið upp tilvik þar sem fólk segist hafa verið tekið upp með gleraugunum án vitneskju. Slík dæmi hafa ýtt undir áhyggjur af mögulegri notkun þeirra við ólöglegar upptökur í kvikmyndahúsum.

Share this article