Innlent | mbl | 20.8.2026 | 21:15 Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Verkfall hleðslumanna í Barselóna setti strik í reikninginn. Ljósmynd/Samsett/mbl.is/Eyþór/Pexels/Aleksandar Pasaric Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Ásgeir Theódórsson læknir segir farir sínar ekki sléttar af flugferð með Icelandair frá Keflavík til Barselóna föstudaginn 6. ágúst í samtali við mbl.is. Hann fékk töskurnar sínar og eiginkonu sinnar aldrei afhentar eftir lendingu. Ástæðan er verkfall hleðslumanna á flugvellinum í borginni sem hófst sama dag samkvæmt þarlendum fjölmiðlum. Það hefur staðið yfir síðan þá að því er Vilapress greinir frá. Tilkynnt var um það 4. ágúst samkvæmt umfjöllun El País . Ásgeir kveðst ekki hafa fengið neina aðvörun frá Icelandair um málið fyrir flugferðina þrátt fyrir að verkfall væri yfirvofandi. Hjónin vita enn ekki hvar farangurinn er niður kominn. Þau komu heim til Íslands 14. ágúst. Tilefni ferðarinnar var 80 ára afmæli eiginkonu Ásgeirs. Hann segist ekki hafa hugmynd um hvar töskurnar eru í dag þegar tvær vikur eru liðnar frá brottfarardegi. Barselóna. Ljósmynd/Pexels/Aleksandar Pasaric Tilkynningin barst of seint Ásgeir segir þau hjónin hafa gist í átta nætur í Katalóníu, fyrst í fjórar nætur í Sitges og síðan aðrar fjórar í Barselóna. Þegar hjónin lentu þar biðu þau eftir töskunum sínum tveimur við töskubeltið í einn og hálfan klukkutíma. Ásgeir segir marga hafa verið í sömu stöðu og þau. Eftir að hafa ráðfært sig við spænskumælandi hjón, sem biðu einnig við beltið, kom í ljós að verkfall væri hafið. „Þetta var greinilega tilkynnt og öllum ljóst, að minnsta kosti þarna úti, frá 4. ágúst,“ segir Ásgeir en innlendir miðlar höfðu þá fjallað um verkfallið. Hann bendir á að sér hafi borist tölvupóstur frá Icelandair nokkrum klukkutímum eftir lendingu föstudaginn 6. ágúst. Þar kom fram að fólk gæti hugsanlega lent í seinkunum vegna verkfallsins. Ekkert hafi komið fram um seinkanir á afhendingu farangursins. Hann segir talsverða ringulreið hafa skapast á flugvellinum. Fólki hafi verið réttur miði með vefslóð af flugvallarstarfsfólkinu til að tilkynna um seinkun á afhendingu farangursins. Björg Kristjánsdóttir og Ásgeir Theódórs. Ljósmynd/Aðsend Átta nætur án farangurs Hjónin gáfust að lokum upp á því að bíða og fóru upp á hótel. Ásgeir segir téða vefslóð ekki hafa virkað og því leitaði hann til hótelstarfsfólksins sér til aðstoðar. Þau hafi reynt að komast í samband við Icelandair. Hann segir þau ekki hafa náð sambandi við flugfélagið fyrr en eftir tvo daga, á mánudeginum eftir helgi. Þá hafi Ásgeiri verið tjáð að hann fengi upplýsingar frá Icelandair í tölvupósti. Þær hafi þó ekki borist. Ásgeir segist hafa leitað til dóttur sinnar á Íslandi í framhaldinu. Hún hafi komist í samband við Icelandair og fengið svokallað tilvísunarnúmer fyrir farangurinn. Það hafi flugfélagið ætlað að senda út til Barselóna en Ásgeir kveðst ekki hafa frétt neitt af töskum þeirra hjóna síðan. Á sjötta degi ferðarinnar hafi hann fengið tilkynningu um að verið væri að leita að töskunum en ekki frétt neitt síðan. Þau hjónin hefðu verið án snyrtivara, lyfja, fata og annarra muna sem voru í farangrinum í þá átta daga sem ferðin tók. Ásgeir segir Icelandair ekki hafa varað farþega við verkfallinu. mbl.is/Eyþór Ekki hugmynd um hvar farangurinn er „Ég hef ekki hugmynd um hvar farangurinn er,“ segir Ásgeir þegar tvær vikur eru liðnar frá brottfarardegi og sex dagar frá heimkomu. „Icelandair hefur ekki haft þá virðingu að hafa samband í tölvupósti eða með hringingu.“ Ásgeir segir að búið sé að senda allar upplýsingar til flugfélagsins. Hann bíði eftir fregnum og segir að hann hefði kunnað að meta aðvörun frá Icelandair fyrir flugið. „Það geta allir lent í þessu en svona þjónusta gengur bara ekki upp hjá flugfélagi,“ segir hann. „Manni líður þannig að þetta sé bara týnt, bara farið,“ segir hann um töskurnar tvær að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vilhjálmur vissi ekkert um fyrirhugaða heimkomu Harrys Stjartan vann Íslandsmeistaranna Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Fyrsta íslenska mótið með VRS Umræðan Varnir Íslands eru traustar Hvers virði er fullveldið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Framkvæmdir að hefjast við Miklubraut og Grensásveg Vill ekki lengur ganga í ESB Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Rafleiðnin ekki verið hærri síðan 2017 Mest lesið Í gær Í vikunni Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Verða áfram í sölu Hafnarstræti undir glerhimin Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nýjast á mbl.is » Vilhjálmur vissi ekkert um fyrirhugaða heimkomu Harrys Stjartan vann Íslandsmeistaranna Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Fyrsta íslenska mótið með VRS Umræðan Varnir Íslands eru traustar Hvers virði er fullveldið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Hafnarstræti undir glerhimin Tónninn talsvert mildari en áður „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ Mest lesið Í gær Í vikunni Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Verða áfram í sölu Hafnarstræti undir glerhimin Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum