- What: Treatment of a crab named Jodie Foster
- Impact: The crab received a unique medical treatment
Lyfjameðferðinni var beitt eftir að krabbamein í kjálkabeini slöngunnar tók sig upp að nýju eftir aðgerð. Slangan er 23 ára, býr í Chester-dýragarðinum á norðvestanverðu Englandi, er fjórir og hálfur metri á lengd, nefnd eftir leikkonunni Jodie Foster og hefur að sögn náð fullum bata. Sífellt færist í aukana að dýr fái meðferð sem áður var aðeins ætluð mönnum og rafskautsmeðferðinni hefur áður verið beitt við lækningu skjaldbaka og eðla. Rafskautslyfjameðferðin felur í sér notkun krabbameinslyfsins bleómýcíns samhliða því að röð rafboða er send beint á æxlissvæðið; þessi boð gera frumur krabbameinsins tímabundið gegndræpari, sem auðveldar lyfinu að komast inn í þær. Dýralæknateymi garðsins skipulagði meðferðina á Jodie í samvinnu við krabbameinssérfræðinga háskólans í Liverpool, enda hafði snákur aldrei hlotið hana svo vitað sé. Slangan var næstum hætt að nærast og hafði sig lítt í frammi og því þurfti að grípa til örþrifaráða til að bjarga lífi hennar. Jodie var furðufljót að jafna sig segja læknarnir og sérfræðingarnir sem fagna samvinnunni og ætla að birta ítarlega grein um aðgerðina svo kollegar víða um veröld geti nýtt sér hana.