Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar minni háttar líkamsárás sem gerð var í því umdæmi sem þjónar Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi. Lögreglan rannsakar minni háttar líkamsárás, innbrot og eignaspjöll.RÚV / Vilhjálmur Þór Guðmundsson Einnig er verið að rannsaka innbrot og þjófnað í tveimur fyrirtækjum og eignarspjöll sem framin voru í öðru þeirra. Ferðamaður tilkynnti vasaþjófnað í vesturhluta Reykjavíkur og þar slasaðist einnig maður á hlaupahjóli. Auk þessa höfðu lögreglumenn afskipti af ökumönnum í margs konar ástandi, sektuðu minnst einn sem ók gegn rauðu ljósi og gripu í tómt eftir tilkynningu um að verið væri að spóla á bílastæði verslunar í vesturborginni.