Í dag fikrar lægðardrag sig nær vesturhluta landsins með smávægilegri vætu til að byrja með. Búast má við suðvestanstrekkingi norðvestantil. Annars gola, stinningsgola, kaldi eða stinningskaldi og dálítil væta. Spáð er bjartviðri að mestu austanlands með allt að 19 stiga hita. Skynsamlegt gæti verið fyrir íbúa vestantil á landinu að að taka fram föt og yfirhafnir sem þola vel vætu enda hvessir heldur og bætir í rigningu þar í kvöld og nótt. Spáð er suðvestankalda, stinningskalda eða allhvössum vindi á morgun og þá verður talsverð rigning eða súld, einkum vestanlands, en sunnanlands með kvöldinu. Hiti verður víða tíu til sautján stig að deginum, hlýjast austanlands. Á morgun halda suðvestlægar áttir að leika um landið með fremur vætusömu veðri, einkum vestanlands. Annað kvöld verður tekið að draga úr úrkomu en þá segir Veðurstofan að búast megi við allhvössum eða jafnvel hvössum vindi á hálendinu. Á sunnudaginn dregur víða úr vindi og úrkomu ásamt því sem hlýnar. Norðaustanlands gætu hitatölur náð allt að 20 stigum en búast má viðr rigningu austanlands síðdegis. Landsmenn mega búa sig undir vætu með köflum í flestum landshlutum eftir helgina og fram í miðja viku.