Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Alda tekin að rísa úr Fossvoginum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 21.8.2026 | 7:30 | Uppfært 7:52 Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Verkefnisstjórinn segir að þegar þurrkvíar verði komnar á sinn stað í lok september verði framkvæmdum á sjó hætt, enda allra veðra von yfir vetrartímann. mbl.is/Karítas Þóroddur Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Borgarlínan Kaupa stöðvar og steina fyrir Borgarlínuna Svara kalli kjósenda á Suðurlandsbraut Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ » Fleiri tengdar fréttir Mikilvægur áfangi í byggingu Fossvogsbrúarinnar Öldu, sem ná mun yfir voginn frá Kársnesi í Kópavogi yfir í Nauthólsvík í Reykjavík, náðist á dögunum þegar lokið var við að bora alla staura brúarinnar niður í hafsbotninn. Þar með er einum umfangsmesta hluta undirstöðuvinnunnar lokið, eins og Guðjón Örn Björnsson verkefnisstjóri útskýrir fyrir blaðamanni Morgunblaðsins, sem heimsótti byggingarstað fyrr í vikunni. Verkið er hluti af fyrstu lotu borgarlínu. Brúin er ætluð borgarlínuvögnum, strætisvögnum, gangandi og hjólandi vegfarendum, auk forgangsakstri lögreglu, sjúkraflutninga og slökkviliðs. Alda verður 270 metra löng og allt að 17 metra breið. Frétt af mbl.is Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Steypa staura Guðjón segir að nú taki næsti áfangi við, að steypa staurana sem eru um sjötíu sentimetrar að þvermáli. Þar næst verða svokallaðar þurrkvíar hífðar á staurana en innan þeirra verða sjálfar undirstöður brúarstöplanna steyptar. Staurarnir, sem eru sex í hverri undirstöðu, eru boraðir þrjá metra ofan í fast berg. Guðjón segir að vinnan fari fram bæði við brúarstæðið, en einnig í Kópavogshöfn skammt frá, þar sem smíðaðar eru þurrkvíar og fleira. Þurrkví er í raun risastór stálhólkur á hæð við tveggja hæða hús sem er festur á staurana sex. Hver þurrkví er um það bil 6,5x15 metrar að rúmmáli og átta metra há. Verkefnisstjórinn segir að þegar þurrkvíarnar verði komnar á sinn stað í lok september verði framkvæmdum á sjó hætt, enda allra veðra von yfir vetrartímann. Áfram verði þó unnið við stöplana sem eru næst landi beggja vegna. „Það er erfitt að vinna á flotpramma, eins og við höfum verið að gera, þegar sjór er úfinn. Við ætlum að halda áfram okkar vinnu í landi auk þess sem vinna við sjálfa brúarsmíðina er í fullum gangi í Póllandi.“ Verkefnastjórinn segir erfitt að vinna á flotpramma, eins og hefur verið gert, þegar sjór er úfinn. mbl.is/Karítas Frétt af mbl.is Prammi á stærð við handboltavöll Stingast upp úr sjónum Guðjón segir að brúarsmíðin veki sífellt meiri athygli hjá vegfarendum, sérstaklega þegar fólk er farið að sjá eitthvað stingast upp úr sjónum. Þegar þurrkvíarnar verða komnar upp á enn meira eftir að sjást af framkvæmdinni. Gríðarstórum 55 metra háum beltakrana, með 300 tonna lyftigetu, verður siglt á pramma út á voginn og áætlað er að byrja að hífa þurrkvíarnar á sinn stað 25. ágúst nk. Spurður nánar um áhuga á framkvæmdinni segir Guðjón að íbúar í Kársnesi sýni málinu vaxandi áhuga, enda sé þarna um mikla samgöngubót að ræða fyrir íbúa Kópavogs og Reykjavíkur. Burðarverkið skagar upp úr sjónum. mbl.is/Karítas „Fólk er almennt mjög jákvætt, enda höfum við lagt okkur fram um að veita góðar upplýsingar og passa upp á að mæla og fylgjast með hljóðvistinni í nágrenninu með sérstökum hljóðmælum,“ segir Guðjón en einungis er unnið á nóttunni í Fossvoginum vegna flugumferðar um Reykjavíkurflugvöll. „Við megum ekki vinna hér á daginn. Flugvöllurinn er opinn frá klukkan sjö á morgnana til klukkan 23 á kvöldin. Við hringjum alltaf í flugvöllinn á kvöldin til að athuga hvort einhver flug séu væntanleg eftir kl. 23, sjúkraflug eða slíkt, áður en við hefjumst handa.“ Guðjón, sem er verkfræðingur, sérhæfður í jarðtækni, segir að leyfi til að vinna á nóttunni hafi fengist frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og viðeigandi heilbrigðiseftirliti. Guðjón segir að brúin sé mjög framkvæmdatæknilega flókið mannvirki. „En sem betur fer er vinnuhópur, sem við fengum sérstaklega að utan, nýkominn úr sambærilegu verkefni í Svíþjóð. Hann er því öllum hnútum kunnugur.“ Frétt af mbl.is Ístak og Per Aarsleff smíða Fossvogsbrú Enn stærri krani Um brúna segir Guðjón að hún verði sett saman og prófuð ítarlega áður en hún kemur hingað til lands í fimm bútum næsta sumar. „Þá kemur hingað enn stærri krani til að hífa brúarhlutana upp á undirstöðurnar. Það verður verkefni næsta sumars. Eftir það byrjum við að vinna í brúardekkinu. Svo tekur við frágangur í kringum lýsingu, handrið og aðra fínpússningu. Það verður unnið til vorsins 2028. Brúin verður svo vígð 16. júní 2028.“ Pramminn er á stærð við handboltavöll. mbl.is/Karítas Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Borgarlínan Kaupa stöðvar og steina fyrir Borgarlínuna Svara kalli kjósenda á Suðurlandsbraut Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Skólahald hefst á ný í Grindavík Hvessir og bætir í rigningu síðdegis Madonna braut diska í 68 ára afmælisveislunni Að missa ekki móðinn Umræðan Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Að múra sig inni þegar heimurinn stendur opinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Írar treysta illa samningum við ESB Væta í kortunum Hafnarstræti undir glerhimin Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Mest lesið Í gær Í vikunni Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Refir gerast ágengir fyrir norðan Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Áður óbirtur kafli Thorsaranna lítur dagsins ljós í haust Telja sig fyrsta til að klífa Eyrarkerlingu Meta möguleika á leit að Lúðvík Hvað hefur komið fram í Reykholtsmálinu? Búast má við umferðartöfum á morgun Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Nýjast á mbl.is » Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Skólahald hefst á ný í Grindavík Hvessir og bætir í rigningu síðdegis Madonna braut diska í 68 ára afmælisveislunni Að missa ekki móðinn Umræðan Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Að múra sig inni þegar heimurinn stendur opinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tilfinningin „algjörlega dásamleg“ Írar treysta illa samningum við ESB Framkvæmdir að hefjast við Miklubraut og Grensásveg Hvessir og bætir í rigningu síðdegis Mest lesið Í gær Í vikunni Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Refir gerast ágengir fyrir norðan Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Áður óbirtur kafli Thorsaranna lítur dagsins ljós í haust Telja sig fyrsta til að klífa Eyrarkerlingu Meta möguleika á leit að Lúðvík Hvað hefur komið fram í Reykholtsmálinu? Búast má við umferðartöfum á morgun Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar

Share this article