Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Útlit fyrir að jökulhlaupið í Múlakvísl sé í rénun

Read Full Article →

Allt bendir til þess að jökulhlaup í Múlakvísl sé í rénun. Rafleiðnin í ánni lækkaði í nótt og að sögn Elísabetar Pálmadóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands, eru líkur á að hlaupið taki enda á næstu dögum. Fólk er þó hvatt til að fara með gát við Múlakvísl, enn gæti gasmengunar verið vart. „Við viljum bara undirstrika það að það er varhugavert að staldra þarna við ána og sérstaklega ef fólk er að finna fyrir einhverjum einkennum að yfirgefa þá svæðið.“ Jökulhlaup í Múlakvísl eru tíð og er hlaupið sem nú gengur yfir ekki stórt samanborið við önnur hlaup í ánni að sögn Elísabetar. „Nei, þetta er ekki stórt hlaup, þetta myndi bara kallast lítið jökulhlaup.“ Allt bendir til þess að hlaupið sé í rénun. Elísabet segir að stundum hafi komið hlaup í toppum en að ekki sé útlit fyrir að svo sé núna. „Svona miðað við stöðuna núna lítur allt út fyrir að hlaupið sé í rénun og við vonum það bara.“

Share this article