Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

210 milljónir hafa safnast: „Frábært hlaupaveður“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 21.8.2026 | 13:22 210 milljónir hafa safnast: „Frábært hlaupaveður“ Nú eru 15.130 manns skráðir í hlaupið í ár og um 200 góðgerðarfélög taka þátt í áheitasöfnuninni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Um 210 milljónir króna hafa safnast í áheitum fyrir Reykjavíkurmaraþonið sem fram fer á morgun. Það er um 15 milljónum meira en hafði safnast á sama tíma í fyrra. Í fyrra söfnuðust alls um 250 milljónir króna og segja forsvarsmenn hlaupsins söfnunina í ár vera á svipuðu róli. Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir, sviðsstjóri viðburðarsviðs Íþróttabandalags Reykjavíkur, segir 15.130 manns skráða í hlaupið í ár og um 200 góðgerðarfélög taka þátt í áheitasöfnuninni. Uppselt er í 10 km keppnishlaupið en enn eru laus pláss í 10 km almenningshlaupið. Þá styttist í að uppselt verði í bæði heilt og hálft maraþon. Frétt af mbl.is Nærri uppselt í Reykjavíkurmaraþonið Engin þóknun tekin Að sögn Hrefnu renna um 99,9% áheitafjárins til góðgerðarfélaganna og tekur enginn aðili þóknun af söfnuninni. Einungis falli til lágmarksfærslugjöld vegna kortafærslna. „Íslandsbanki leggur töluvert fjármagn til svo góðgerðarfélögin geti fengið þetta beint. Það eru einhver lágmarksfærslugjöld sem falla til en það er verið að vinna með öllum fyrirtækjunum þannig að félögin fái 99,9% af sínum góðgerðarsöfnunum,“ segir hún í samtali við mbl.is. Minna álag á Hringbraut Frímann Ari Ferdinandsson, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur, segir að víða verði lokað fyrir umferð á höfuðborgarsvæðinu vegna Reykjavíkurmaraþonsins á morgun. Lögregla verður til aðstoðar þar sem álag er mest og má gera ráð fyrir töluverðum umferðartruflunum frá klukkan átta um morguninn til þrjú síðdegis. Í ár verður hlaupið ræst við Háskóla Íslands en ekki við Sóleyjargötu líkt og undanfarin ár og því verður álag á Hringbraut minna en áður. „Það verður miklu minna álag á Hringbrautinni. Síðustu ár höfum við þurft að stoppa umferð þar fjórum sinnum að morgni en nú verður það bara einu sinni,“ segir Frímann. Vesturbærinn lokast tímabundið á meðan hlauparar fara um svæðið og einnig verður lokað á Granda, Sæbraut og víða í miðborginni. „Vesturbærinn lokast þarna um morguninn tímabundið meðan straumurinn fer í gegn. Svo verður lokað til dæmis út á Granda og í miðbænum. Einnig verða truflanir á Sæbraut og við Rauðarárstíg, einkum fyrir hádegi.“ Frétt af mbl.is Ýmist mótvindur eða meðvindur í hlaupinu Öðruvísi stemning Veðurspáin fyrir morgundaginn er ekkert sérstök en Frímann segir aðstæður engu að síður góðar til hlaupa. Stemningin verði einfaldlega öðruvísi í rigningunni. „Þetta er frábært hlaupaveður en kannski ekki jafnmikið skemmtiskokk fyrir þá sem vilja fara út að hlaupa og njóta stemningarinnar í góða veðrinu. Stemningin verður því aðeins öðruvísi í rigningunni.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Flugurnar leika kylfinga grátt 210 milljónir hafa safnast: „Frábært hlaupaveður“ Vissi að brotaþoli ætti milljónir Faxaflóahafnir reisa nýjar höfuðstöðvar Reykjavík Marathon nearly sold out Umræðan Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Burðarásar á brauðfótum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Írar treysta illa samningum við ESB Sjávarafurðir 40% af útflutningi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Ákærði á staðnum þegar eiginkonan gaf skýrslu Mest lesið Í gær Í vikunni Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Refir gerast ágengir fyrir norðan Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Meta möguleika á leit að Lúðvík Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Nýjast á mbl.is » Flugurnar leika kylfinga grátt 210 milljónir hafa safnast: „Frábært hlaupaveður“ Vissi að brotaþoli ætti milljónir Faxaflóahafnir reisa nýjar höfuðstöðvar Reykjavík Marathon nearly sold out Umræðan Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Burðarásar á brauðfótum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meta möguleika á leit að Lúðvík Forræði sjávarauðlinda færi til ESB „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ Rafleiðnin ekki verið hærri síðan 2017 Mest lesið Í gær Í vikunni Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Refir gerast ágengir fyrir norðan Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Meta möguleika á leit að Lúðvík Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar

Share this article