Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Bensínskatturinn til skoðunar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 21.8.2026 | 14:50 Bensínskatturinn til skoðunar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að til skoðunar sé að framlengja lækkun virðisaukaskattþreps á eldsneyti. mbl.is/Eggert Jóhannesson Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Mjúki tónninn fór vel í markaðinn Tónninn talsvert mildari en áður Indó hækkar vexti Svona getur vaxtahækkunin komið við húsnæðislánin Margra ára rekstrartap hins opinbera þrýst á gjaldhækkanir » Fleiri tengdar fréttir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir til skoðunar að framlengja tímabundna lækkun á virðisaukaskattþrepi eldsneytis, en fleira komi til greina. Ríkisstjórnin eigi gott samráð við vinnumarkaðinn um að halda sátt á vinnumarkaði. Þetta kom fram í viðtali mbl.is við forsætisráðherra eftir ríkisstjórnarfund nú í morgun. Kristrún segir að vaxtahækkun Seðlabankans sé vissulega vonbrigði, en tekur gagnrýni á hið opinbera sem orsakavald verðbólgu ekki til sín, jafnvel þó svo að á komandi fjárlögum séu ýmsar skattahækkanir áformaðar. Halda sínu striki „Það liggur fyrir og það mun bara koma í ljós í fjárlögunum, í takt við fjármálaáætlun, að tekjur og útgjöld hins opinbera, ríkisins a.m.k., eru að þróast með mjög skynsamlegum hætti á næsta ári og út tímabilið. Ríkisútgjöld sem hlutfall af landsframleiðslu eru ekki að blása út og tekjur í takt við það, sem hefur sést á síðustu árum.“ Frétt af mbl.is Vilja ekki kalla saman þing til lækkunar VSK Hún segir hið sama eiga við um gjaldabreytingar, ríkið veiti ákveðna þjónustu sem ekki verði komist hjá að fjármagna. „Sum af henni er beinlínis lögbundin um hvernig verð eigi að þróast og sumt hefur ekki haldið í við verðlagsþróun. Annað eru bara hækkanir sem við höfum séð á ári hverju og það liggur alveg fyrir að þær hækkanir sem voru í janúar voru ekki úr takt við það tíðkast hefur, svona ef við horfum á áhrif á vísitöluna.“ Unnt sé að fara í beinar gjaldalækkanir að raunvirði og rýra afkomu ríkissjóðs, en þá þurfi að bæta það upp með öðrum hætti. Frétt af mbl.is Hefur áhyggjur verði ekki gripið í taumana „Það eru skiptar skoðanir á hversu mikil áhrif á verðbólguna umfang ríkisins hafi. Það breytir því ekki að öll þessi umræða um gjöld hefur vissulega áhrif. Hún hefur áhrif á væntingar, verðbólguviðhorf almennings.“ Kristrún segist vongóð um að sátt haldist á vinnumarkaði. mbl.is/Eggert Jóhannesson Voru of vongóð Kristrún viðurkennir að hugsanlega hafi stjórnvöld verið of værukær gagnvart verðbólgu eftir að hún fór undir 4% í lok liðins kjörtímabil eftir að hafa reist sig talsvert hærra árið 2024. „Við héldum að við værum komin á betri stað varðandi kjölfestu verðbólguvæntinga síðasta desember. Ég hugsa að Seðlabankinn hafi upplifað það sama,“ segir Kristrún, en bendir á að utanaðkomandi áhrif hafi haft sitt að segja, svo sem vegna ófriðar við Persaflóa. Frétt af mbl.is Ásgeir: Hækkun á verðbólguvæntingum gengur til baka „Þannig að núna erum við með það verkefni í höndunum að auka tiltrú almennings aftur á þessu verkefni og stærsta einstaka línan í því er og verður hallalaus fjárlög í haust.“ Erum að skoða þetta En verðbólgan er samt há, sem getur ógnað friði á vinnumarkaði. Kæmi til greina að framlengja lækkun virðisaukaþreps á eldsneyti? „Þetta er bara eitthvað sem við erum að skoða á þessum tímapunkti. Þetta er kostnaðarsöm aðgerð, en hefur að sama skapi áhrif á vísitöluna. Þannig að við þurfum bara að meta það og erum meðal annars í samtali við aðila vinnumarkaðarins hvort við getum farið í afmarkaðar aðgerðir sem að eru skynsamar varðandi kostnað og útgjöld en líka bara aðra félagslega þætti sem að kosta ekki útgjöld sem að geta skapað aukið sátt á vinnumarkaði.“ Þið hafið ekki langan tíma. „Við höfum verið í mjög góðri og djúpri vinnu aðilum vinnumarkaðarins í allt sumar. Það er búið að vera stýrihópur og undirhópar að störfum í allt sumar sem eru að funda þessa dagana og eru að koma með ákveðið upplegg. Þannig að ég ætla að leyfa mér að vera vongóð þrátt fyrir að aðstæður séu krefjandi.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Mjúki tónninn fór vel í markaðinn Tónninn talsvert mildari en áður Indó hækkar vexti Svona getur vaxtahækkunin komið við húsnæðislánin Margra ára rekstrartap hins opinbera þrýst á gjaldhækkanir » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Bensínskatturinn til skoðunar Ræða um nýja Þjóðadeild Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Mjúki tónninn fór vel í markaðinn Umræðan Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Að múra sig inni þegar heimurinn stendur opinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tilfinningin „algjörlega dásamleg“ Forræði sjávarauðlinda færi til ESB „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Mest lesið Í gær Í vikunni Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Refir gerast ágengir fyrir norðan Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Meta möguleika á leit að Lúðvík Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Nýjast á mbl.is » „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Bensínskatturinn til skoðunar Ræða um nýja Þjóðadeild Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Mjúki tónninn fór vel í markaðinn Umræðan Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Að múra sig inni þegar heimurinn stendur opinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvessir og bætir í rigningu síðdegis „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Sjávarafurðir 40% af útflutningi Mest lesið Í gær Í vikunni Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Refir gerast ágengir fyrir norðan Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Meta möguleika á leit að Lúðvík Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar

Share this article