Merkja mátti kólnun á fasteignamarkaði á fyrri helmingi ársins, miðað við sama tímabil í fyrra, og færri byggingarleyfi voru gefin út. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar . Tæplega 5.000 kaupsamningum var þinglýst á landinu öllu á fyrstu sex mánuðum ársins, um 14% færri en á sama tíma í fyrra. Þinglýstir kaupsamningar hafa ekki verið færri á fyrstu sex mánuðum árs frá 2015, ef undanskilið er árið 2023. Þegar skýrslan var gefin út hafði 899 kaupsamningum verið þinglýst í júlí en þeir voru 1058 í fyrra. Því sé útlit fyrir að kaupsamningar í júlí verði áfram færri en síðustu ár. Þá hefur hlutfall íbúða sem seljast yfir auglýstu verði lækkað undanfarin misseri. Það nálgast nú það sem þekktist fyrir heimsfaraldur á höfuðborgarsvæðinu. Meira en helmingur allra íbúða á sölu nýjar Meðalsölutími íbúa á höfuðborgarsvæðinu hefur verið nokkuð stöðugur undanfarna mánuði en hefur lengst mest í nágrenni við höfuðborgarsvæðið, að því er kemur fram í skýrslunni. Á höfuðborgarsvæðinu hefur hann að jafnaði verið lengstur í Garðabæ eða 137 dagar. Í Hafnarfirði er hann næstlengstur, um 103 dagar en stystur í Mosfellsbæ, 64 dagar. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu og meira en helmingur allra íbúða á sölu í byrjun júlí voru nýjar. Meðalsölutími á landsbyggðinni er mjög breytilegur milli mánaða og hefur verið að jafnaði um 108 dagar á fyrstu sex mánuðum ársins. Sölutíminn hefur lengst um fjórðung frá því í fyrra. Að jafnaði tekur lengri tíma að selja nýjar íbúðir en aðrar. Greiðslubyrði nýrra húsnæðislána enn þung Lánamarkaðurinn einkennist enn að miklu leyti af verðtryggðum lánum og hlutdeild óverðtryggðra lána hefur staðið í stað frá áramótum. Greiðslubyrði nýrra húsnæðislána, bæði verðtryggðra og óverðtryggðra, er enn þung í sögulegu samhengi þó að greiðslur af óverðtryggðum íbúðalánum hafi orðið viðráðanlegri á síðustu árum samhliða vaxtalækkunum og launahækkunum umfram íbúðaverðshækkanir. Leigumarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur þróast í takt við almennt verðlag undanfarið. Leiguverð virðist hafa hækkað meira á landsbyggðinni en innan höfuðborgarsvæðisins. Byggingarmarkaðurinn sýnir einnig merki um kólnun. Færri byggingarleyfi hafa verið gefin út fyrir uppbyggingu nýrra íbúðarhúsa í ár miðað við fyrri ár. Næsta talning stofnunarinnar á íbúðum í byggingum, sem verður kynnt í septembermánuði, veitir þó betri upplýsingar um stöðu íbúðarbygginga.