Dregið hefur verið úr löggæslu á Þórshöfn eftir að lögreglustöðinni var lokað vegna myglu fyrir tæpu ári. Lítið hefur gerst í húsnæðismálum og stöðugildum lögreglumanna hefur fækkað. „Við höfum ekki orðið vör við neinar framkvæmdir þar eða séð neinar ákvarðanir teknar um hvort eigi að gera við húsnæðið eða leggja það af. Sveitarfélagið getur til dæmis aðstoðað lögregluembættið við að finna húsnæði. Við erum að eignast húsnæði á næstunni sem myndi henta undir lögreglustöð sem dæmi. Við viljum bara fá samtal um þetta, að láta ekki þessa þjónustu drabbast svona niður,“ segir Sigurður Ragnar Kristinsson, formaður byggðarráðs Langanesbyggðar. Allt að tveggja klukkustunda viðbragðstími Lögreglan hefur aðstöðu í skrifstofuhúsnæði á vegum sveitarfélagsins þar sem hvorki eru fangaklefar né yfirheyrsluherbergi. Einn lögreglumaður sinnir löggæslu á Þórhöfn og Húsavík. Langanesbyggð er stór og víðfeðm og viðbragðstími lögreglu getur verið allt að tvær klukkustundir í góðri færð því að frá Húsavík eru um 150 kílómetrar á Þórshöfn. „Fyrir örfáum árum voru tveir lögreglumenn í fullu starfi en nú er maður í 50% stöðu á Þórshöfn og 50% stöðu á Húsavík,“ segir Sigurður og bætir við: „Þetta er mjög lifandi samfélag þó að við séum fámenn. Það er mikið um útkall lögreglu og víkingasveitin hefur mætt til okkar óþarflega oft á síðustu árum. Það má segja að löggæslan sé í fáránlegri stöðu í dag. Engin lögreglustöð og maður í hálfu starfi. Það er ekki boðlegt.“ Lögreglustjóri tekur undir áhyggjur Langnesinga Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, tekur undir áhyggjur Langnesinga. Vandamálið sé tvíþætt og snúi bæði að húsnæði og mönnun. „Ég vil í upphafi segja að ég skil áhyggjur byggðarráðsins í Langanesbyggð. Þetta er auðvitað stórt svæði og það er mikið umleikis og þarna þarf að vera löggæsla. Vandinn er í raun tvíþættur. Annars vegar er þetta húsnæðismál, sem er auðvitað bara leiðindamál. Við höfum ekki notað húsnæðið síðan í fyrra, þá fluttum við úr því og leigjum aðstöðu fyrir lögregluna á Þórshöfn,“ segir Páley. Þá hefur gengið erfiðlega að manna stöðurnar á Þórshöfn og fyrir vikið er löggæslu sinnt frá Húsavík, um 150 kílómetra frá. „Það sem er erfiðast núna er að enginn menntaður lögreglumaður býr á svæðinu. Við höfum ekki fækkað stöðugildum þarna en það er erfitt að manna þessar stöður,“ segir Páley Borgþórsdóttir.