Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vilja leggja niður skólaakstur úr Suðurhlíðum í Hlíðaskóla

Read Full Article →

Meirihlutinn í Reykjavíkurborg leggur til að frá og með upphafi skólaársins 2026-2027 verði ekki boðið upp á skólaakstur úr Suðurhlíðunum í Hlíðaskóla. Tillaga þess efnis var samþykkt á fundi skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar með fjórum atkvæðum gegn tveimur. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins kusu gegn tillögunni og fulltrúi Miðflokks sat hjá. Í bókun þeirra segir að þó að vegalengdin sé innan fjarlægðarviðmiða sem gilda um reglubundinn skólaakstur þurfi að taka tillit til ýmissa þátta. „Fyrir börn og sérstaklega þau yngstu er um talsverða vegalengd að ræða, allt að 1,4 kílómetra, sem áætlað er að taki börn sem búa lengst frá skólanum hátt í hálftíma að labba.“ Grunnskólastarf hefst eftir þrjá daga og er stuttur fyrirvarinn gagnrýndur í bókuninni. Talið er að um 15 börn myndu nýta sér skólaaksturinn. Leiðir uppfylli skilyrði um reglubundinn skólaakstur Tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs var samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins. Í bókun meirihlutans segir að tillagan hafi verið samþykkt á grundvelli „faglegs mats um öryggi gönguleiða og gildandi viðmiða um vegalengdir til skóla“. Í bókuninni er ítrekað að mikilvægt sé að ákvörðunin og framkvæmd hennar verði kynnt foreldrum og skólasamfélaginu, eins verði vel fylgst með áhrifum breytingarinnar á ferðir barna til og frá skóla.

Share this article