Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Leiðtogar Bandalags hinna viljugu hittast í Kyiv á mánudag

Read Full Article →

Fulltrúar þeirra ríkja sem veitt hafa Úkraínu stuðning, Bandalags hinna viljugu ríkja, hittast í Kyiv á mánudag til að ítreka liðsinni sitt. 24. ágúst er þjóðhátíðardagur Úkraínu og í ár er aldarfjórðungur frá því landið lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum. Volodymyr Zelensky forseti hvetur leiðtogana til að auka enn þrýsting á Rússa enda sé friður útilokaður nema þeir verði látnir standa reikningsskil gerða sinna. Þeir Emmanuel Macron Frakklandsforseti, Friedrich Merz Þýskalandskanslari og breski forsætisráðherrann Andy Burnham stýra fundinum. Búist er við um tíu leiðtogum til Kyiv, þeirra á meðal Antonio Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins. Kaja Kallas, utanríkismálastjóri sambandsins, fordæmir mannskæða drónaárás Rússa á verslanamiðstöð í gær sem hryðjuverk og hótar þeim hörðustu refsiaðgerðum frá upphafi innrásar. Sameinuðu þjóðirnar segja að á þessu ári jafnist fjöldi almennra borgara sem látið hafa lífið í árásum við það sem var á fyrstu mánuðum stríðsins. Zelensky ræddi við aðalframkvæmdastjórann Antonio Guterres símleiðis í gær og upplýsti hann um atlögur Rússa síðustu daga og fjölda látinna af þeim völdum. Úkraínumenn hafa kallað hástöfum eftir auknum stuðningi í ljósi þungra árása Rússlandshers enda gengur illa að verjast skæðadrífu eldflauga nánast á hverri nóttu. Úkraínuher hefur einnig hert atlögur sínar að Rússlandi síðustu mánuði sem stjórnvöld segja tilraun til að þvinga Rússa að samningaborðinu. Ekkert hefur miðað í samkomulagsátt og Zelensky hefur þvertekið fyrir að gangast að umfangsmiklum landakröfum Rússa. Hann hefur sagt það jafngilda uppgjöf og gera Úkraínu berskjaldaða fyrir annarri innrás.

Share this article