Leik og söngkonan Elín Hall hefur síðustu ár stormað upp á stjörnuhimininn og ekkert virðist geta stöðvað hana. Steinunn Ása Þorvaldsdóttir ræddi við Elínu í fyrsta þætti Með okkar augum, í nýrri seríu sem hóf göngu sína á miðvikudagskvöld. Mikill heiður að vera fjallkonan Á þjóðhátíðardaginn er þess jafnan beðið með eftirvæntingu að sjá hver er fjallkonan. Í ár varð Elín fyrir valinu og það voru ekki margir hissa á því enda er hún mikil stjarna. „Það var þvílíkur heiður. Ég fékk að fara inn í alþingishúsið í fyrsta sinn,“ segir hún og brosir. „Það var allt svo tignarlegt og gaman að fá að taka þátt í hefðum. Ég var ótrúlega spennt.“ Hispurslaust, ævintýragjarnt og frjálst barn Elín ólst upp í Kanada þar sem foreldrar hennar voru við nám. Þegar hún er spurð hvernig barn hún var segist hún hafa verið hugmyndarík, ævintýragjörn og með miklar tilfinningar. Hún hafði mesta unun af að skapa ævintýri og segja sögur. Hún segist í raun enn vera að gera það sama og hún gerði sem lítil stelpa. „Ég hef alltaf verið að gera það sem ég er að gera í dag en ég var hispurslausari og frjálsari kannski sem barn. Maður er alltaf að reyna að finna þetta aftur.“ Söngurinn alltumlykjandi Elín hefur verið umkringd söng frá barnsaldri. „Mamma var alltaf syngjandi og báðar ömmur mínar. Það var söngur í öllu sem við gerðum,“ rifjar hún upp. „Þegar við vöskuðum upp vorum við að syngja og þegar það var löng bílferð. Það finnst öllum í fjölskyldunni minni mjög gaman að syngja.“ Elín varð landsfræg þegar hún tók þátt í Söngvakeppninni 16 ára gömul. Hún flutti lagið Í kvöld, fangaði hjörtu þjóðarinnar og komst í úrslit. Elín Hall á æðislegan kærasta og fjölskyldu, yndislega vini og sætasta hund í heimi. Hún segist þakklát fyrir gjafir lífsins og að þakklætið framleiði hamingju. Hún segist fegin að hafa ekki unnið keppnina. „Þetta var ótrúlega skemmtilegt og stórt tækifæri fyrir mig. Ég er eiginlega rosalega fegin að ég vann ekki því ég fór að gera aðra hluti sem ég hafði betra af því að gera.“ Elín hefur slegið í gegn á skjánum. Leiðin þangað hófst í raun með þátttökunni í Söngvakepninni. Leikstjórinn Baldvin Z sá hana þar og fékk hana í prufur fyrir þátt sem hann var að gera, og hét Réttur. Í framhaldi af því fékk Elín aðalhlutverk í kvikmynd hans, Lof mér að falla. Elín Hall á æðislegan kærasta og fjölskyldu, yndislega vini og sætasta hund í heimi. Hún segist þakklát fyrir gjafir lífsins og að þakklætið framleiði hamingju. Í myndinni leikur hún unglingsstúlkuna Magneu sem villist af leið og ánetjast eiturlyfjum. „Þetta varð stökkpallurinn minn inn í leiklist svo þetta var mjög óvart. Þetta var mjög erfitt, sérstaklega því þetta voru sannar sögur,“ segir Elín. Í myndinni er Magnea tvíkynhneigð og á í sambandi við aðra stúlku á sínu reki, Stellu. Elín segist aðspurð aldrei hafa spáð í kynhneigð persónunnar. Það var ekkert mál, ást er bara ást. Hún er þarna bæði með konum og körlum og er að finna út úr þessu en hennar stóra verkefni í lífinu er eitthvað allt annað en kynhneigðin hennar í þessari mynd. Elín Hall á æðislegan kærasta og fjölskyldu, yndislega vini og sætasta hund í heimi. Hún segist þakklát fyrir gjafir lífsins og að þakklætið framleiði hamingju. Saga Vigdísar er saga margra kvenna Elín fór svo á síðasta ári með hlutverk Vigdísar Finnbogadóttur í samnefndum þáttum sem Vesturport framleiddi. Til að undirbúa sig fyrir hlutverkið las hún ævisögu Vigdísar. Þetta er auðvitað saga Vigdísar en þetta er líka saga margra kvenna. Svo þurfti ég að sleppa takinu og gera þetta af eins mikilli sannfæringu og vera sönn handritinu. En á endanum er þetta ekki heimildarmynd, þetta er byggt á hennar lífi og bíó. Þakklæti býr til hamingju Elín blómstrar og hamingjan skín af henni. Hún segist sjálf finna mesta hamingju í litlu hversdagslegu hlutunum í lífinu. Að eiga æðislega fjölskyldu og æðislegan kærasta. Ég á sætasta hund í heimi, yndislega vini og það eru þessir hlutir. Ég vakna mjög oft og hugsa vá hvað ég er glöð að hafa tekið þær ákvarðanir sem ég hef tekið. Mér þykir svo vænt um lífið mitt. Og þakklætið segir Elín að sé algjör lykill og vegvísir í lífinu. Það er svo mikilvægt að stoppa og vera þakklátur. Það er þakklæti sem býr til hamingju. Lífið er alls konar, ekki alltaf auðvelt. Tilveran getur verið flókin og erfitt að vita hvenær áföllin dynja á. Þú getur ekki reitt þig á að hamingjan verði alltaf til staðar í óendanlegu magni. Þú ert þakklátur fyrir það sem þú hefur, meðvitaður um að æfa þakklætið. Þá geturðu alltaf búið til hamingju. Það er gott að vita að maður hefur sjálfur stjórn á því. Mikilvægast að vera trúr sjálfum sér Þegar Elín Hall er að lokum beðin um að veita ungu fólki ráð segir hún að hún myndi ráðleggja því að vera trú sjálfum sér. „Ég held að það sé það mikilvægasta. Að þekkja sjálfan sig og vita hvað drífur þig og mótiverar. Um leið og þú ert með eitthvað sem er smá æðra, þá er allt svo miklu auðveldara,“ segir Elín. Þannig sé unnt að finna kjark. Það gerir að verkum að þú verður hugrakkari því þú ert að gera það fyrir einhvern æðri sjálfum þér. Að finna tilgang, eitthvað sem hreyfir við þér og svo bara hlaupa af stað. Elín Hall á æðislegan kærasta og fjölskyldu, yndislega vini og sætasta hund í heimi. Hún segist þakklát fyrir gjafir lífsins og að þakklætið framleiði hamingju.