Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Pistill: Heimanámsaðstoð á bókasöfnum

Read Full Article →

Innlent | Sunnudagsblað | 22.8.2026 | 9:00 Pistill: Heimanámsaðstoð á bókasöfnum Hildur Björnsdóttir Setja bókamerki Pistilll Hildar Björnsdóttur úr Sunnudagsblaðinu Skólaganga barna markast ekki eingöngu af því sem gerist innan skólastofunnar. Heimanám er órjúfanlegur hluti af námi flestra barna – en aðstæður til að sinna því eru afar misjafnar. Sum börn eiga foreldra sem hafa tíma, þekkingu og tungumálafærni til að aðstoða við heimanám dag hvern. Önnur börn búa ekki við sama stuðning – fyrir því geta verið margvíslegar ástæður. Þessi aðstöðumunur getur haft afgerandi áhrif á námsárangur barna og dregið úr tækifærum þeirra til framtíðar. Það var því einstaklega ánægjulegt þegar Reykjavíkurborg, Velferðarsjóður barna og Heimili og skóli undirrituðu í vikunni samstarfssamning um heimanámsaðstoð fyrir grunnskólabörn á bókasöfnum borgarinnar. Velferðarsjóður barna fjármagnar verkefnið, Heimili og skóli útvega sjálfboðaliða til heimanámsaðstoðar og Reykjavíkurborg opnar bókasöfnin. Verkefnið er dæmi um tækifærin sem falist geta í öflugu samstarfi sveitarfélaga, félagasamtaka og íbúa. Markmiðið er fyrst og fremst að stuðla að jöfnum tækifærum barna til náms í Reykjavík og veita þeim aðstoð við heimanám sem á þurfa að halda. Við byrjum á Borgarbókasöfnum í Kringlunni og Gerðubergi en söfnin liggja vel við strætósamgöngum. Þjónustan stendur hins vegar sannarlega öllum grunnskólabörnum í Reykjavík til boða. Vonir standa til þess að verkefnið skili árangri og að það megi útvíkka til fleiri borgarhluta með tíð og tíma. Þótt kennarar vinni stórkostlegt starf í skólum borgarinnar dag hvern mætum við miklum áskorunum. Um 40% barna útskrifast eftir 10 ára skyldunám án grunnfærni í lesskilningi og niðurstöðum í PISA hefur hrakað verulega á síðustu áratugum. Ég trúi því að í sérhverju barni búi hæfileikar og kraftur – en til að þeir fái notið sín þurfa öll börn tækifæri til að ná árangri, óháð heimilisaðstæðum. Heimanámsaðstoðin er liður í stærri sókn borgarinnar í menntamálum. Við höfum sett okkur metnaðarfull markmið um aukinn árangur í skólastarfi. Við ætlum að innleiða fleiri samræmdar mælingar, ráðast í mælanlegt læsisátak, tryggja aukinn bókakost á skólabókasöfnum og gera kröfu um árangur. Markmiðið er skýrt: Grunnskólar Reykjavíkur eiga að vera í fremstu röð og öll börn, óháð aðstæðum, eiga að fá sanngjarnt tækifæri til að blómstra. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fékk lögregluaðstoð við að komast út úr bílnum Handtóku rússneskan huldumann Verður leikmaður Manchester United Aðsend grein: Eyjar, ystu svæðin, sérlausnir og undanþágur Pistill: Heimanámsaðstoð á bókasöfnum Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvessir og bætir í rigningu síðdegis Meta möguleika á leit að Lúðvík Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Mest lesið Í gær Í vikunni Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Embætti forstjórans ekki auglýst Tvær Hollywoodmyndir í tökum hér Aðildarviðræður setji Ísland í allsherjarbiðstöðu Utanríkisráðuneytið orðið að áróðursdeild Skúli Mogensen: Ég segi nei! Gera allt til að finna farangur Ásgeirs ESB fallist ekki á rauðu strikin Lögreglan rannsakar líkamsárás í Reykjavík 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Nýjast á mbl.is » Fékk lögregluaðstoð við að komast út úr bílnum Handtóku rússneskan huldumann Verður leikmaður Manchester United Aðsend grein: Eyjar, ystu svæðin, sérlausnir og undanþágur Pistill: Heimanámsaðstoð á bókasöfnum Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Framkvæmdir að hefjast við Miklubraut og Grensásveg Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Glóandi gull í bekk á HM Mest lesið Í gær Í vikunni Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Embætti forstjórans ekki auglýst Tvær Hollywoodmyndir í tökum hér Aðildarviðræður setji Ísland í allsherjarbiðstöðu Utanríkisráðuneytið orðið að áróðursdeild Skúli Mogensen: Ég segi nei! Gera allt til að finna farangur Ásgeirs ESB fallist ekki á rauðu strikin Lögreglan rannsakar líkamsárás í Reykjavík 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur

Share this article