Innlent | Morgunblaðið | 22.8.2026 | 14:46 Annar þrefalt fleiri viðskiptavinum Ný endurvinnslustöð Sorpu verður brátt opnuð. Bygging hennar kostaði um 1,5 milljarða. Eins og sjá má er stöðin yfirbyggð að hluta. mbl.is/Eggert Jóhannesson Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Ný og glæsileg endurvinnslustöð Sorpu við Lambhagaveg verður tekin í notkun um næstu mánaðamót. Óhætt er að segja að aðkoman og umgjörðin muni gera þá hversdagslegu athöfn að henda rusli ólíkt ánægjulegri en verið hefur. Nýja stöðin kemur í staðinn fyrir endurvinnslustöðina við Sævarhöfða. Síðasti dagur í rekstri hennar verður 30. ágúst. Starfsfólk Sorpu notar svo 31. ágúst til að flytja og opnað verður á nýja staðnum 1. september. Í Góða hirðinum verða seldar hurðir, gluggar, hellur og fleira. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Það hefur verið mikið álag á stöðinni á Sævarhöfða, sérstaklega eftir að flokkum var fækkað í Jafnaseli og á Dalvegi,“ segir Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, sem sýndi útsendurum Morgunblaðsins nýju stöðina í vikunni. Þegar mest lét áður komu um 800 bílar á stöðina á Sævarhöfða en þeir voru komnir upp undir þúsund í sumar þegar álag hefur verið mest. „Stöðin ræður ekki við svona margar heimsóknir,“ segir Gunnar Dofri og bætir við að viðskiptavinir hafi mátt þurfa að sætta sig við að bíða í röð til að komast inn á stöðina og þegar inn var komið tók við önnur röð. Þetta ætti ekki að verða vandamál á Lambhagavegi. Unnið var að því í vikunni að gera allt klárt fyrir opnunina. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Hér eru þrjú hlið inn sem þýðir að fræðilega getum við þrefaldað bílafjöldann frá Sævarhöfða. Þar gátu farið inn 130 á klukkutíma en þeir verða nú 390. Við eigum í það minnsta að geta mokað miklu fleirum inn en við erum vön.“ Athygli vekur að stöðin er á tveimur hæðum. Gámarnir sem hent er í eru hæð neðar en viðskiptavinir sem þýðir að umferð stórra bíla rekst ekki á við almenna umferð. „Við getum því stanslaust verið að skipta út gámum og koma með tóma í stað fullra. Það kemur aldrei upp sú staða að einhver bil séu ekki notuð.“ Hægt er að velja úr þremur akreinum eftir eðli erindisins. mbl.is/Eggert Jóhannesson Eins og sjá má á myndunum er ekið undir skyggni sem gerir heimsóknina skaplegri í vondum veðrum. Undir skyggninu eru fimm mismunandi stæði sem merkt eru eftir mismunandi flokkum til endurvinnslu. Þegar undan skyggninu er komið er annað eins af gámum í sömu flokkum. Undir skyggninu er bygging þar sem meðal annars verður hægt að losa sig við raftæki og spilliefni og svo verður þar útibú frá Góða hirðinum. Þá mun Endurvinnslan opna móttöku fyrir flöskur og dósir. „Skyggnið yfir stöðinni gerir það að verkum að við erum ekki eins háð veðrinu. Stærstu dagarnir okkar eru góðviðrisdagar snemma á sumrin um helgar. Núna vonum við að þetta dreifist meira.“ Gunnar Dofri kveðst telja öruggt að fólki eigi eftir að finnast eftirsóknarvert að koma á nýju Sorpustöðina. „Það eru stór hverfi hér í kring, Grafarvogurinn, Árbærinn, Norðlingaholtið og Úlfarsárdalurinn. Ég geri líka ráð fyrir að stöðin togi aðeins umferð úr Mosfellsbænum. Við þekkjum ekki svona mannvirki og innviði í kringum úrgangsmeðhöndlun, allavega ekki hér á Íslandi. Við höfum hins vegar séð að svona stöðvar virka rosalega vel bæði í Danmörku og Svíþjóð.“ Gunnar Dofri Ólafsson Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndir: Blautt, kalt en gott Reykjavíkurmaraþon Annar þrefalt fleiri viðskiptavinum Ósköp meinlausir pollar á jökli Sigurvegarar Reykjavíkurmaraþonsins „Þetta er skelfilega erfitt“ Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bensínskatturinn til skoðunar Annar þrefalt fleiri viðskiptavinum Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Hvessir og bætir í rigningu síðdegis Mest lesið Í gær Í vikunni Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins ESB fallist ekki á rauðu strikin Utanríkisráðuneytið orðið að áróðursdeild Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Tvær Hollywoodmyndir í tökum hér Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Umfangsmikil björgunaraðgerð á Fimmvörðuhálsi Skúli Mogensen: Ég segi nei! Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Nýjast á mbl.is » Myndir: Blautt, kalt en gott Reykjavíkurmaraþon Annar þrefalt fleiri viðskiptavinum Ósköp meinlausir pollar á jökli Sigurvegarar Reykjavíkurmaraþonsins „Þetta er skelfilega erfitt“ Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Sjávarafurðir 40% af útflutningi Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Mest lesið Í gær Í vikunni Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins ESB fallist ekki á rauðu strikin Utanríkisráðuneytið orðið að áróðursdeild Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Tvær Hollywoodmyndir í tökum hér Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Umfangsmikil björgunaraðgerð á Fimmvörðuhálsi Skúli Mogensen: Ég segi nei! Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur