„Ég náði mínum markmiðum, að vera undir 2 klukkutímum og gerði það nokkuð vel en það er mjög gaman að taka þátt í þessu. Þetta er í fyrsta sinn sem ég hleyp hálft maraþon og svona lengi. Þetta er eitthvað nýtt og gríðarlega gaman.“ „Það kemur bara í ljós. Það er alltaf óráðið. Ég var hlaupari í dag og svo sjáum við til hvað ég er á morgun.“ „Stemningin var frábær og það var gríðarlega gaman að taka þátt í þessu,“ sagði Jóhann sem hljóp til styrktar Krýsuvíkursamtökunum. „Þau eru að gera frábært starf og það er gaman að geta hjálpað þeim. Guðmundur faðir minn hefur verið að hjálpa þeim. Það vantar auðvitað peninga inn í svona störf. Það þarf að stytta biðlistana. Þeir eru alltof langir. Það eru 20% sem komast inn og það er bara allt of lítið. Við þurfum að hjálpa og hver króna skiptir máli.“