Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Paul Watson krefst endurupptöku á kyrrsetningu Bandero

Read Full Article →

Paul Watson krefst endurupptöku vegna kyrrsetningar á skipinu Bandero af hálfu Hvals hf. og að hún verði felld niður. Hann telur augljóst að lögum um kyrrsetningu hafi ekki verið fylgt, að því er fram kemur í endurupptökubeiðni. Bandero er skip Paul Watson samtakanna, sem Watson stofnaði. Hann stofnaði einnig félagið Atlantic Marine Industries LLC. Samtökin sigldu til Íslands í þeim tilgangi að stöðva veiðar Hvals hf. Íslensk yfirvöld tóku yfir stjórn skipsins eftir að áhöfn Bandero reyndi að raska hvalveiðum á Íslandsmiðum. Skipið var kyrrsett í kjölfarið og hefur setið við höfn í Reykjavík og á Akranesi. Í endurupptökubeiðninni segir að umtalsverðir annmarkar hafi verið á málsmeðferð sýslumannsins á Vesturlandi. Verulegur vafi um tilvist meintrar kröfu Samkvæmt beiðninni var hvorki félaginu né lögmanni þess tilkynnt um beiðni Hvals hf. um kyrrsetningu skipsins og því hafi ekki gefist tækifæri til mótmæla. „Enginn var við gerðina af hálfu gerðarþola og var því ekki unnt að koma mótmælum við kröfu gerðarbeiðanda eða skilyrðum kyrrsetningar áður en gerðinni lauk,“ segir í beiðninni. Augljóst sé að skilyrði laga um kyrrsetningu hafi ekki verið uppfyllt. „Þar sem skipið var þegar bundið farbanni stjórnvalds verður ekki séð að raunveruleg og yfirvofandi hætta hafi verið á brottför skipsins. Sérstaklega er því mótmælt að hættan, hafi hún verið fyrir hendi, hafi verið svo brýn að heimilt hafi verið að láta gerðina fara fram án tilkynningar til gerðarþola.“ Hvalur hf. hafi lagt fram beiðni um að skipið yrði kyrrsett vegna meintrar skaðabótakröfu. Embætti sýslumannsins á Vesturlandi hafi fallist á kyrrsetningu þegar verulegur vafi væri til staðar um tilvist og lagaheimild meintrar kröfu.

Share this article