Tveir menn höfðu setið í gæsluvarðhaldi hér á landi í tengslum við manndráp á Kársnesi í Kópavogi í tæpar tvær vikur en öðrum þeirra var sleppt í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Sá er erlendur ríkisborgari en gæsluvarðhald yfir hinum manninum, sem er íslenskur, er í gildi fram á mánudag. Ekki liggur fyrir hvort farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir honum. Tveir til viðbótar eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins, einn á Spáni og annar í Póllandi. Maðurinn, erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri, var utandyra með mikla áverka þegar lögreglu bar að garði og lést af sárum sínum á sjúkrahúsi. Samkvæmt heimildum fréttastofu var hann stunginn og að sýru hafi verið skvett á hann. Heimildir fréttastofu herma að lögregla telji málið tengjast skipulagðri brotastarfsemi og Europol hefur aðstoðað við rannsóknina, sem er umfangsmikil og flókin, en lögregla telur sig þó hafa ágætis mynd af atburðarásinni.