Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Þetta var óvenjulegur dagur“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 22.8.2026 | 22:04 „Þetta var óvenjulegur dagur“ Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki „Það er ekki á hverjum degi sem Landhelgisgæslan sinnir útkalli á Grænlandi en það vildi bara svo til að þyrlurnar okkar voru næstu bjargir,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send alla leið til Austur-Grænlands á fimmtudag til að sækja veikan farþega um borð í farþegaskipi. Björgunarmiðstöðin í Nuuk óskaði eftir aðstoð Gæslunnar þar sem íslenskar þyrlur voru næstu tiltæku bjargir. Hann segir gott samstarf vera á milli Grænlendinga, Dana og Íslendinga á þessum slóðum. Tvö langflug sama dag Þetta var annað langflug þyrlusveitarinnar sama dag en fyrr um daginn hafði áhöfn TF-GRO sótt veikan skipverja um borð í farþegaskip um 140 sjómílur norðaustur af Íslandi. „Þetta var óvenjulegur dagur, sérstaklega í ljósi þess að það voru tvær flugferðir djúpt úti á hafi.“ TF-GRO tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 14.35 og millilenti á Akureyri til að taka eldsneyti. Skömmu eftir klukkan 17 var veiki skipverjinn hífður um borð og fluttur til Ísafjarðar. Þar beið sjúkraflugvél sem flutti hann áfram til Reykjavíkur. Á Ísafirði hófst þegar undirbúningur fyrir næsta útkall og um kvöldmatarleytið hélt þyrlan til Grænlands. „Afar annasamur dagur“ Lent var á flugvellinum í Nerlerit Inaat, einnig þekktum sem Constable Point, klukkan 21 og eldsneyti tekið áður en flogið var að farþegaskipinu. Veiki farþeginn var hífður um borð og fluttur aftur á flugvöllinn. Þar beið sjúkraflugvél Norlandair sem flutti hann til Íslands. „Auðvitað var ánægjulegt að Gæslan gat brugðist við en það má sjá á kortinu að þetta var afar annasamur dagur hjá TF-GRO. Þeir byrjuðu á að fara frá Reykjavík til Akureyrar og þaðan að skemmtiferðaskipinu. Svo var farið til Ísafjarðar til að fylla á, þaðan að flugvellinum á Grænlandi þar sem aftur var fyllt á og svo að skipinu. Sjúklingurinn var síðan fluttur á flugvöllinn á Grænlandi og svo haldið heim,“ segir Ásgeir. Eftirlitsflugvél Gæslunnar, TF-SIF, fylgdi þyrlunni í langflugunum. Þegar farið er í svo löng sjúkraflug er jafnframt önnur þyrla og áhöfn höfð til taks. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Enginn með allar rétttar en þrír með bónusvinning Steig indverskan dans við Tjörnina „Þetta var óvenjulegur dagur“ Hneig niður og lést í miðjum leik Manstu þegar Anna Mjöll giftist 91 árs gömlum bílasala? Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Erfiðast að missa sjúklinga „Þetta er skelfilega erfitt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins Umfangsmikil björgunaraðgerð á Fimmvörðuhálsi Óska eftir því að skila lóðum í Vatnsendahverfi Bökkuðu bíl á rúðu og stálu lyfjum Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu ESB fallist ekki á rauðu strikin Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Embætti forstjórans ekki auglýst Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Nýjast á mbl.is » Enginn með allar rétttar en þrír með bónusvinning Steig indverskan dans við Tjörnina „Þetta var óvenjulegur dagur“ Hneig niður og lést í miðjum leik Manstu þegar Anna Mjöll giftist 91 árs gömlum bílasala? Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Erfiðast að missa sjúklinga Embætti forstjórans ekki auglýst Myndir: Blautt, kalt en gott Reykjavíkurmaraþon Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins Umfangsmikil björgunaraðgerð á Fimmvörðuhálsi Óska eftir því að skila lóðum í Vatnsendahverfi Bökkuðu bíl á rúðu og stálu lyfjum Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu ESB fallist ekki á rauðu strikin Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Embætti forstjórans ekki auglýst Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn

Share this article