Yfirmaður öryggisráðs Írans segir að öll ríki sem styðji eða taki þátt í efnahagsstríði Bandaríkjanna verði álitin óvinir íslamska lýðveldisins. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað refsiaðgerðir gegn Írönum sem engan eigi sinni líka og jafnframt hverju því landi sem á í viðskiptum við þá eða liðsinnir á nokkurn hátt. Bandaríkin hafa brýnt önnur ríki til að liðsinna við einangrun Írana, þar á meðal Kína. Þarlendir ráðamenn hafa gagnrýnt ráðgerðina og sagt hana engu breyta um lok átaka. Nánari útlistun aðgerða er boðuð á morgun, mánudag. „Við biðlum til allra landa að taka ekki þátt í efnahagsstríðinu sem Bandaríkin boða,“ sagði Mohsen Rezai, yfirmaður öryggisráðs Írans, í sjónvarpsávarpi. Hann bætti við að hagsmunir þeirra ríkja yrðu illa skaðaðir, sem ekki héldu sig í hæfilegri fjarlægð frá aðgerðum Bandaríkjanna. Rezai sagði jafnframt að Íran ætti fleiri spil uppi í erminni, ætti meðal annars eftir að gera atlögu að efnahagslegum hagsmunum Bandaríkjanna. Hingað til hafi árásir eingöngu verið gerðar á herstöðvar þeirra í Mið-Austurlöndum en næstu skotmörk yrðu olíu- og fjármálafyrirtæki, sagði Rezai og klykkti út með því að líkja viðbrögðum Írana við jarðskjálfta.