- What: Discussion about extending child supervision hours
- Impact: Policy debate in Iceland
Innlent | mbl | 23.8.2026 | 9:35 Skella skollaeyrum við athugasemdum landlæknis og lögreglu Útivistartími 10-12 ára barna verður lengdur að óbreyttu. Frumvarpið er á vegum mennta og barnamálaráðuneytis. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson/Stjórnarráðið Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og embætti landlæknis hafa gert athugasemdir við áform um að lengja útivistartíma 10 til 12 ára barna um eina klukkustund yfir vetrartímann. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur nú birt frumvarpsdrög í Samráðsgátt þar sem lagt er til að börn á þessum aldri megi vera úti til klukkan 21 án fylgdar fullorðinna. Núgildandi reglur miða við að börn á þessum aldri megi vera utandyra til 20. Sambærileg breyting var hluti af frumvarpi til nýrra barnaverndarlaga sem var til meðferðar á Alþingi á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga. Höfðu áhyggjur af svefni Við fyrri meðferð málsins gerðu lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og embætti landlæknis athugasemdir við breytinguna. Þar komu meðal annars fram áhyggjur landlæknis af því hvaða áhrif lengri útivistartími gæti haft á svefn barna. Lögreglan telur óæskilegt að flækja reglurnar, enda hafi tekið mörg ár að festa þær í sessi. Reglurnar séu mikilvægt forvarnartæki og hafi meðal annars verið notaðar til að sporna gegn óæskilegri hópamyndun seint á kvöldin Sjónarmið barna Ráðuneytið telur hins vegar að breytingin skerði ekki ráðlagðan svefntíma barna og vísar meðal annars til sjónarmiða barna sem kölluðu eftir auknum sveigjanleika. Meiri hluti velferðarnefndar taldi við fyrri meðferð málsins rétt að kalla eftir frekara samráði við börn og aðra hlutaðeigandi áður en breytingar yrðu gerðar. Málið hefur því nú verið tekið út úr heildarendurskoðun barnaverndarlaga og lagt fram sérstaklega. Sumartíminn styttur Fleiri breytingar eru lagðar til. Börn níu ára og yngri mættu samkvæmt frumvarpinu vera úti til klukkan 20 en reglur fyrir 13 til 16 ára yrðu óbreyttar og miðað áfram við klukkan 22. Þá er lagt til að sumartími reglnanna hefjist 1. júní í stað 1. maí og standi til 1. september. Markmiðið er að tengja reglurnar betur við skólaárið. Reglur um útivistartíma barna hafa að meginstefnu staðið óbreyttar frá árinu 1992. Umsagnarfrestur um frumvarpsdrögin er til og með 28. ágúst. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skella skollaeyrum við athugasemdum landlæknis og lögreglu Segir „Já til að sjá“ sniðuga auglýsingabrellu Spenna að hætti Hitchcocks Súrrealísk en góð upplifun Selenskí hafnar öllu tali um kosningar Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Undirfyrirsögn rengd Embætti forstjórans ekki auglýst Súrrealísk en góð upplifun Steinn Ármann Magnússon er látinn Mest lesið Í gær Í vikunni Steinn Ármann Magnússon er látinn Ölvuð börn í miðbænum: Tveimur skemmtistöðum lokað Halla forseti búin í tánum „Þetta var óvenjulegur dagur“ Kaupa bíl fyrir skólabörn við rýmingu Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Þrír unnu 164.000 krónur Greiðum fyrir innviði annarra Hitinn gæti náð 20 stigum fyrir austan KEX er hótel í gamla kaupfélaginu Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins Umfangsmikil björgunaraðgerð á Fimmvörðuhálsi Óska eftir því að skila lóðum í Vatnsendahverfi Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Bökkuðu bíl á rúðu og stálu lyfjum Undirfyrirsögn rengd Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Embætti forstjórans ekki auglýst Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Nýjast á mbl.is » Skella skollaeyrum við athugasemdum landlæknis og lögreglu Segir „Já til að sjá“ sniðuga auglýsingabrellu Spenna að hætti Hitchcocks Súrrealísk en góð upplifun Selenskí hafnar öllu tali um kosningar Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er skelfilega erfitt“ Súrrealísk en góð upplifun Embætti forstjórans ekki auglýst Annar þrefalt fleiri viðskiptavinum Mest lesið Í gær Í vikunni Steinn Ármann Magnússon er látinn Ölvuð börn í miðbænum: Tveimur skemmtistöðum lokað Halla forseti búin í tánum „Þetta var óvenjulegur dagur“ Kaupa bíl fyrir skólabörn við rýmingu Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Þrír unnu 164.000 krónur Greiðum fyrir innviði annarra Hitinn gæti náð 20 stigum fyrir austan KEX er hótel í gamla kaupfélaginu Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins Umfangsmikil björgunaraðgerð á Fimmvörðuhálsi Óska eftir því að skila lóðum í Vatnsendahverfi Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Bökkuðu bíl á rúðu og stálu lyfjum Undirfyrirsögn rengd Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Embætti forstjórans ekki auglýst Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn