- What: Man executed for alleged espionage
- Impact: Political event in Iran
Karlmaður var líflátinn í Íran í morgun fyrir að veifa vélsög við mótmæli gegn stjórnvöldum í janúar auk þess sem hann var sakaður um að vera útsendari Bandaríkjanna og Ísraels, samkvæmt umjföllun AFP-fréttaveitunnar. Dómsmálayfirvöld segja Majid Adineh hafa verið sakfelldan fyrir samstarf við erlend öfl í mótmælum vegna síhækkandi framfærslukostnaðar sem brutust fyrst út í höfuðborginni Teheran undir lok síðasta árs, breiddust hratt út og urðu að almennu andófi gegn klerkastjórninni. Adineh var einnig ákærður fyrir vísvitandi íkveikjur og ráðabrugg gegn innra öryggi íslamska lýðveldisins. Því hafi hann verið dæmdur til dauða og allar hans eigur gerðar upptækar. Áfrýjun Majid Adineh til hæstaréttar skilaði engu, dómurinn var staðfestur og hann tekinn af lífi í morgun. Aftökur hafa færst mjög í aukana Á vefsíðu dómstólasýslunnar Mizan segir að Adineh hafi verið handtekinn 9. janúar þungvopnaður ásamt öðrum manni í héraði vestan við höfuðborgina. Mótmælin náðu einmitt hámarki dagana 8. og 9. janúar. Írönsk yfirvöld hafa sagt á fjórða þúsund hafa týnt lífi í mótmælunum og kennt það ofbeldi hryðjuverkasveita undir handarjaðri Bandaríkjanna og Ísraels. Aftökur hafa færst mjög í aukana í Íran frá því Bandaríkin og Ísrael lögðu til atlögu gegn landinu 28. febrúar. Talsverður fjöldi aftakanna tengist mótmælunum en önnur stríðinu. Metfjöldi var líflátinn í Íran á síðasta ári, eða 1.689, sem var það mesta síðan 1989 samkvæmt upplýsingum mannréttindasamtakanna Iran Human Rights í Noregi og Together Against Death Penalty sem hefur aðsetur í París. Amnesty International segir Íran koma næst Kína í fjölda aftaka á heimsvísu.