OS eignir, félag í eigu fyrrverandi knattspyrnumannsins Ólafs Páls Snorrasonar og Hrafnhildar Eymundsdóttur, hagnaðist um 982 milljónir króna árið 2025, samanborið við 41 milljóna króna hagnað árið áður. Tekjur félagsins námu 584 milljónum króna á síðasta ári og hlutdeild í afkomu dótturfélaga nam 414 milljónum króna. Félagið á 100% hlut í átta félögum, flestum tengdum fasteigna- og byggingastarfsemi. Eignir félagsins námu 2,4 milljörðum króna í árslok, samanborið við 1,6 milljarða árið áður, og eigið fé nam 1,6 milljörðum króna. Framtíðarhorfur félagsins ráðast að verulegu leyti af afkomu dótturfélaga, aðgengi að lóðum og þróun vaxta, sem stjórn telur enn hafa veruleg áhrif á fasteigna- og byggingamarkað. Á árinu voru engin ársverk skráð hjá félaginu sjálfu, samkvæmt skýrslu stjórnar í ársreikningnum. Stjórn leggur til að allt að 200 milljónir króna verði greiddar í arð til hluthafa. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu sem kom út 19. ágúst.