Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sífellt fleiri eiga erlent foreldri

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 23.8.2026 | 12:10 Sífellt fleiri eiga erlent foreldri Við Arnarhól. mbl.is/Baldur Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Einstaklingum á Íslandi, þar sem annað foreldrið er erlent, hefur fjölgað mikið á öldinni. Helst það í hendur við mikla fjölgun erlendra ríkisborgara á Íslandi á tímabilinu. Þróunin frá aldamótum er sýnd á grafi hér til hliðar en tölurnar eru sóttar á vef Hagstofu Íslands. Aldamótaárið 2000 voru skráðir 6.433 einstaklingar á Íslandi sem voru fæddir á Íslandi og með annað foreldrið erlent. Þeir urðu í fyrsta sinn rúmlega 10 þúsund árið 2010 og hefur síðan fjölgað í tæplega 17 þúsund, eða um tæplega 70%. Ríflega tvöföldun Sömu sögu má segja um einstaklinga sem voru fæddir erlendis og með annað foreldrið erlent. Þeir voru 2.509 talsins árið 2000 en 5.483 talsins í byrjun þessa árs, sem er vel ríflega tvöföldun á aldarfjórðungi. Samkvæmt sama gagnagrunni Hagstofunnar hefur innflytjendum á Íslandi fjölgað úr 8.425 árið 2000 í 77.226 á þessu ári, sem er ríflega níföldun. Þá hefur einstaklingum sem teljast önnur kynslóð innflytjenda fjölgað úr 478 árið 2000 í 8.351 í byrjun þessa árs, sem er ríflega sautjánföldun frá aldamótum. Erlendum fjölgað meira Alls voru 271.778 manns með íslenskt ríkisfang árið 2000 og 7.271 einstaklingur með erlent ríkisfang. Í byrjun þessa árs voru skráðir 323.769 einstaklingar með íslenskt ríkisfang á Íslandi, sem var fjölgun um 51.991 frá árinu 2000. Þá voru skráðir 70.555 manns með erlent ríkisfang í byrjun þessa árs, sem var fjölgun um 63.284 frá árinu 2000. Hefur erlendum ríkisborgurum því fjölgað meira en íslenskum ríkisborgurum á öldinni. Forvitnilegt er í þessu samhengi að skoða tölur um veitingu ríkisborgararéttar á tímabilinu. 16 þúsund fengu ríkisfang Þannig var alls 15.937 einstaklingum veitt íslenskt ríkisfang á tímabilinu frá 2000 til 2025, samkvæmt sömu heimild, sem vitnar líka um mikinn aðflutning til landsins. Þessi aðflutningur hefur gerst samhliða því að verðmætasköpun í íslenska hagkerfinu hefur aukist mikið. Þórður Gunnarsson hagfræðingur vakti athygli á þessu í kappræðum um ESB-málið í Austurbæjarbíói síðastliðið þriðjudagskvöld, er hann benti á að uppsafnaður hagvöxtur á Íslandi frá aldamótum væri 80%. Til samanburðar hefði næstmesti hagvöxtur í allri Evrópu verið í Hollandi og Danmörku eða um 40%. Mannaflsfrekar greinar Þensluárin 2005-2007 skapaðist mikil eftirspurn eftir vinnuafli í byggingargeiranum á Íslandi og voru þau störf mikið til mönnuð Pólverjum sem urðu áberandi fjölmennastir meðal innflytjenda á Íslandi. Síðan tók við efnahagshrun og efnahagsleg endurreisn. Henni fylgdi mikill aðflutningur erlendra ríkisborgara sem voru 18.964 talsins í byrjun árs 2012 en 70.555 í byrjun þessa árs, sem er 270% fjölgun. Margir þeirra fóru til starfa í byggingargeiranum og í ferðaþjónustunni en báðar greinarnar eru mannaflsfrekar. Við það bætist fjöldi hælisleitenda, ekki síst frá Úkraínu, en þeir eru þó aðeins brot af heildarfjöldanum. Flestir hinna erlendu ríkisborgara hafa flust til landsins vegna atvinnumöguleika en laun á Íslandi teljast vera há. Alls 700 fleiri erlendir ríkisborgarar fluttu til landsins á 2. ársfj. en fluttu frá því, eins og rakið var í Morgunblaðinu 4. ágúst. Með því hafa 1.150 fleiri erlendir ríkisborgarar flust til landsins á fyrri hluta ársins en frá því, en að meðaltali 2.854 fleiri erlendir ríkisborgarar futtu til landsins en frá því á ári tímabilið 2000 til 2025. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Íslendingarnir áberandi í Hollandi Sífellt fleiri eiga erlent foreldri Íslenskt lið í Meistaradeildinni Gervigreindin þróast á ofurhraða „Ég hefði viljað drepa fleiri“ Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Norskar flugsamgöngur á hliðinni Kaupa bíl fyrir skólabörn við rýmingu Halla forseti búin í tánum Selenskí hafnar öllu tali um kosningar Mest lesið Í gær Í vikunni Steinn Ármann Magnússon er látinn Kaupa bíl fyrir skólabörn við rýmingu Ölvuð börn í miðbænum: Tveimur skemmtistöðum lokað Halla forseti búin í tánum Skella skollaeyrum við athugasemdum landlæknis og lögreglu „Þetta var óvenjulegur dagur“ KEX er hótel í gamla kaupfélaginu Segir „Já til að sjá“ sniðuga auglýsingabrellu Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Hitinn gæti náð 20 stigum fyrir austan Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins Umfangsmikil björgunaraðgerð á Fimmvörðuhálsi Óska eftir því að skila lóðum í Vatnsendahverfi Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Bökkuðu bíl á rúðu og stálu lyfjum Undirfyrirsögn rengd Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Steinn Ármann Magnússon er látinn Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Embætti forstjórans ekki auglýst Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Nýjast á mbl.is » Íslendingarnir áberandi í Hollandi Sífellt fleiri eiga erlent foreldri Íslenskt lið í Meistaradeildinni Gervigreindin þróast á ofurhraða „Ég hefði viljað drepa fleiri“ Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vildu halda samfélaginu í Grindavík Embætti forstjórans ekki auglýst Menningarnótt að ná hámarki Selenskí hafnar öllu tali um kosningar Mest lesið Í gær Í vikunni Steinn Ármann Magnússon er látinn Kaupa bíl fyrir skólabörn við rýmingu Ölvuð börn í miðbænum: Tveimur skemmtistöðum lokað Halla forseti búin í tánum Skella skollaeyrum við athugasemdum landlæknis og lögreglu „Þetta var óvenjulegur dagur“ KEX er hótel í gamla kaupfélaginu Segir „Já til að sjá“ sniðuga auglýsingabrellu Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Hitinn gæti náð 20 stigum fyrir austan Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins Umfangsmikil björgunaraðgerð á Fimmvörðuhálsi Óska eftir því að skila lóðum í Vatnsendahverfi Man ekki eftir öðru eins vatni í sigkötlum Mýrdalsjökuls Bökkuðu bíl á rúðu og stálu lyfjum Undirfyrirsögn rengd Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Steinn Ármann Magnússon er látinn Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Embætti forstjórans ekki auglýst Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna

Share this article