Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Segir Bandaríkin hafa viljað takmarka viðskiptasamninga Kanada

  • What: Canada and US trade dispute escalates
  • Impact: Tariffs and diplomatic tensions between countries
Read Full Article →

Forsætisráðherra Kanada segir að Bandaríkjamenn hafi krafist þess að dregið yrði úr umfangi viðskiptasamninga við önnur lönd. Forseti Bandaríkjanna segir Kanda vilja njóta þess góða við að vera ríki í Bandaríkjunum án þess að vera það. Fordæmalaust viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kanada virðist skollið á eftir að þessum bandaþjóðum tókst ekki að komast að samkomulagi um tolla. Hvor þjóð segir hina hafa komið með kröfur sem ekki var hægt að samþykkja. 50% tollur Bandaríkjanna á ýmsar vörur frá Kanada tók gildi í gær. Kanada boðaði að svarað yrði í sömu mynt – þeir tollar taka gildi 8. september. Mark Carney forsætisráðherra Kanada sagði í gær að ein af ástæðunum fyrir því að viðræðurnar fóru út um þúfur var að Bandaríkjamenn kynntu á síðustu stundu tillögu um takmarkanir á viðskiptasamningum Kanada við önnur ríki. Þá hafi Bandaríkin einnig verið með hótanir gegn franska tungumálinu og menningunni í Quebec, hinu frönskumælandi fylki Kanada. Þegar Mark Carney var spurður hvort viðskiptastríð væri hafið milli þjóðanna sagði hann: „Þegar ráðist er á mann er maður í stríði – það var ráðist á okkur.“ Fylgst grannt með viðbrögðum Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði á Truth Social í morgun að Kanadamenn vildu njóta kosta þess að vera ríki í Bandaríkjunum án þess að vera það. Þá hafi þeir lagt tolla á bandaríska bændur í mörg ár. Það væri búið. Kanada er ein fyrsta þjóðin sem gengur úr samningaviðræðum við Trump um tolla. Bretland og Evrópusambandið gerðu til að mynda samkomulag við Bandaríkin. Aðrir þjóðarleiðtogar munu fylgjast grannt með hvað þetta leiðir af sér, til dæmis hvernig kanadískur almenningur tekur því að ýmsar daglegar neysluvörur hækka í verði. Kannanir nú benda til þess að ríflega helmingur þjóðarinnar vilji að stjórnvöld gefi ekkert eftir í viðræðunum.

Share this article