- What: Music release by Alice Sara Ott featuring works by Jóhann Jóhannsson
- Impact: No impact on security
Menning | Tónlist | Sunnudagsblað | 23.8.2026 | 17:00 Skilaboðin í nótunum sjálfum Alice Sara Ott er þýsk og japönsk tónlistarkona. Hún gaf nýverið út plötu með ýmsum verkum eftir íslenska tónskáldið Jóhann Jóhannsson. Ljósmynd/Hannes Caspar Helga Kjaran Birgisdóttir [email protected] Setja bókamerki Þýski píanóleikarinn Alice Sara Ott gaf út plötu fyrr á þessu ári með lögum tónskáldsins Jóhanns Jóhannssonar heitins, Jóhann Jóhannsson: Piano Works, en platan er sú fyrsta sem inniheldur einleikspíanóútsetningu á hans þekktustu verkum. Upptökur á plötunni fóru fram hér í Reykjavík árið 2024 og vann Alice með ýmsum sem höfðu áður unnið með Jóhanni, t.d. upptökustjóranum Bergi Þórissyni. Hvenær heyrðir þú fyrst af Jóhanni og hver voru fyrstu kynnin? „Ég hafði sennilega heyrt tónlistina áður, en í fyrsta skipti sem ég varð meðvitað vör við tónlistina hans var þegar ég horfði á kvikmyndina The Arrival . Síðan horfði ég líka á The Theory of Everything. “ Alice hitti aldrei Jóhann Jóhannsson, sem lést árið 2018, langt fyrir aldur fram, en hún er með samning við sama útgáfufyrirtæki í Þýskalandi og hann var með, Deutsche Grammophon. „Sem tónlistarmaður veitir maður tónmálinu mikla athygli og hvernig það fylgir sjónræna þættinum. Ég elskaði hvernig tónmálið hans Jóhanns lyfti upp sjónrænni hlið myndarinnar, “ segir Alice. „Síðan man ég eftir því þegar hann fór að gefa út plötur hjá Deutsche Grammophon og var þaðan af alltaf mjög meðvituð um tónlistina hans og líkaði hún mjög vel.“ Endurútsett fyrir einleikspíanó Alice segir frá því að einn daginn hafi teymið frá Deutsche Grammophon haft samband og sagt henni að það væri ný píanónótnabók að koma út með nokkrum endurútsettum verkum eftir Jóhann, sem skrifuð höfðu verið fyrir stærri hljómsveitir, fyrir einleikspíanó. Hugmyndin var að taka upp öll lögin í nótnabókinni en Faber Music gaf bókina út árið 2023 og ber hún sama heiti og plata Alice. „Ég bað um nóturnar og spilaði í gegnum þær heima hjá mér og reyndi að komast að því hvort ég gæti miðlað einhverju í gegnum tónlistina. Ég var mjög hrifin af þessum útgáfum og ég ákvað að slá til. “ Alice segist fyrst hafa orðið metvitað vör við tónlist Jóhanns Jóhannssonar þegar hún horfði á kvikmyndina The Arrival. Ljósmynd/Hannes Caspar Vön að finna skilaboðin í verkum Alice segir að það hafi verið einstakt að geta unnið með fólki sem gat deilt sögum af Jóhanni með sér við gerð plötunnar en hún trúir því þó að allt sem maður þurfi að skilja við tónverk sé að finna í nótunum. Hún sé vön að spila tónlist sem samin er af fólki sem hefur verið látið í 200 eða 300 ár og því sé hún vön að finna skilaboðin frá tónskáldunum í tónverkunum sjálfum. Við upptökur á lögum Jóhanns hafi aftur á móti verið ánægjulegt að kynnast fólki sem gat deilt sögum um hann. „Það hjálpaði mér að staðfesta ýmsar hugmyndir sem ég hafði um tónlistina og þó að sagan sé skrifuð í nóturnar skilur maður tónlistina auðvitað betur þegar maður skilur almennilega samhengið í kringum hana.“ Hér má sjá myndband af Alice flytja lagið Be Over sem Jóhann Jóhannsson og Jonas Colstrup sömdu fyrir kvikmyndina The Shadow Play . Ítarlegt viðtal er við Alice í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Bryndís Ásta hlaut styrk til söngnáms Spenna að hætti Hitchcocks „Ég gæti hlustað á djass alla daga“ Málverkið hægt og rólega að deyja Tjónið fordæmalaust Söngvarar í óperunni Falstaff kynntir Leikkonan Phyllida Law látin Mikilvægast að ná til unga fólksins Selja teikningar eftir Gunnlaug Blöndal Ástríðufullur og skapandi Málverkið hægt og rólega að deyja Bryndís Ásta hlaut styrk til söngnáms Tjónið fordæmalaust Söngvarar í óperunni Falstaff kynntir Mikilvægast að ná til unga fólksins Ástríðufullur og skapandi Leikkonan Phyllida Law látin Selja teikningar eftir Gunnlaug Blöndal „Án okkar væri engin tónlist“ Þessi fengu styrk úr sjóðnum Hayden Panettiere látin Frumsýning og sonur í sömu vikunni Leikkonan Phyllida Law látin Þessi fengu styrk úr sjóðnum Málverkið hægt og rólega að deyja Gefur íslenskum söfnum á fjórða tug verka Prófaði sig áfram og fannst aðferðin æðisleg Heldur lífi í gleymdri tungu Tjónið fordæmalaust Tónlistin sem Jón hlustar á í bílnum Áhugaverð viðtöl Menning Býður gestum að leika á landslagið Menning Tekur tíma að byggja upp traust Menning Aldrei sungið áður í Ólafsfirði Menning Vildi fara út fyrir þægindarammann Menning „Eitthvað sem ýtir mér áfram“ Mest lesið Í gær Í vikunni Bryndís Ásta hlaut styrk til söngnáms Spenna að hætti Hitchcocks „Ég gæti hlustað á djass alla daga“ Málverkið hægt og rólega að deyja Tjónið fordæmalaust Söngvarar í óperunni Falstaff kynntir Leikkonan Phyllida Law látin Mikilvægast að ná til unga fólksins Selja teikningar eftir Gunnlaug Blöndal Ástríðufullur og skapandi Málverkið hægt og rólega að deyja Bryndís Ásta hlaut styrk til söngnáms Tjónið fordæmalaust Söngvarar í óperunni Falstaff kynntir Mikilvægast að ná til unga fólksins Ástríðufullur og skapandi Leikkonan Phyllida Law látin Selja teikningar eftir Gunnlaug Blöndal „Án okkar væri engin tónlist“ Þessi fengu styrk úr sjóðnum Hayden Panettiere látin Frumsýning og sonur í sömu vikunni Leikkonan Phyllida Law látin Þessi fengu styrk úr sjóðnum Málverkið hægt og rólega að deyja Gefur íslenskum söfnum á fjórða tug verka Prófaði sig áfram og fannst aðferðin æðisleg Heldur lífi í gleymdri tungu Tjónið fordæmalaust Tónlistin sem Jón hlustar á í bílnum Áhugaverð viðtöl Menning Ekkert útilokað Menning „Eitthvað sem ýtir mér áfram“ Menning Þjóðlagahátíð uppáhalds tími ársins Menning Býður gestum að leika á landslagið Menning „Ég setti sjálfri mér úrslitakosti“