Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Jarðskjálftahrina við Reykjanestá

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 37 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Jarð­skjálfta­hrina við Reykja­nes­tá Markús Þ. Þórhallsson Jarðskjálftahrina er hafin við Reykjanestá. Það var á fimmta tímanum í nótt sem jarðskjálftum tók að fjölga og um klukkan sex varð skjálfti sem mældist af stærðinni 2,6. Jarðskjálftahrinur eru algengar á Reykjanesi. RÚV / Grétar Þór Sigurðsson Minney Sigurðardóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, áréttaði í samtali við fréttastofu í morgun að skjálftarnir kæmu til af völdum flekahreyfinga og að hrinur væru algengar á þessum slóðum. Fyrir 7 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Rign­ing um land allt Landsmenn ættu að búa sig undir rigningu í dag. Úrkoma verður um allt land en mest á Suðaustur- og Vesturlandi. Víða verður hvasst en það dregur úr vindi og vætu í kvöld. Fyrir 9 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Nýja-Sjáland Luxon: Ekki má umbera þann skaða sem börn verða fyrir af völdum sam­fé­lags­miðla Stjórnvöld á Nýja-Sjálandi boða löggjöf sem á er að koma í veg fyrir að börn ánetjist samfélagsmiðlum. Bann verði lagt við skráningu barna undir 16 ára aldri og miðlafyrirtækjunum sjálfum gert að tryggja að þau komist ekki inn að viðlögðum sektum. Fyrir 29 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Þjálf­arateymi Vík­ings hljóp til styrkt­ar Ingv­ari Þjálfarateymi karlaliðs Víkings í fótbolta hljóp í Reykjavíkurmaraþoni til styrktar Ingvars Jónssonar. Ingvar greindist með krabbamein fyrr í sumar. Fyrir 59 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hand­tek­inn fyrir að munda hníf en reynd­ist vera að tína blóm Markús Þ. Þórhallsson Lögreglumenn handtóku mann í miðborginni eftir að tilkynning barst um að hann væri að munda þar hníf. Maður sem neitaði að yfirgefa baklóð lögreglustöðvarinnar við Hlemm fékk að gista klefa í staðinn. RÚV / Ragnar Visage Við yfirheyrslu kom á daginn að þarna var á ferð erlendur ferðamaður sem notaði hnífinn við að tína blóm. Hann var þá látinn laus að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maður sem ógnaði öðrum með eggvopni í því umdæmi lögreglunnar sem sinnir Breiðholti og Kópavogi var á bak og burt þegar lögreglumenn bar að, sem telja hann hafa forðað sér með strætisvagni. Maður var handtekinn fyrir að neita þrátt fyrir ítrekuð tilmæli að yfirgefa port lögreglustöðvarinnar við Hlemm og fékk þess í stað að gista þar fangaklefa. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Lýðstjórnarlýðveldið Kongó Eb­óla­far­ald­ur­inn geisar áfram af miklum krafti Markús Þ. Þórhallsson Ebólafaraldurinn sem geisar í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur kostað yfir 2.600 manns lífið, samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum sem birtar voru í gær. Frá jarðaför konu sem lést úr ebólu í Ituri-héraði í Austur-Kongó. EPA / DIEUDONNE DIROLE Fjöldi staðfestra smita er kominn yfir 5.500. Þetta er sautjándi ebólafaraldurinn sem herjar á Kongó og er hvort tveggja sá skæðasti og umfangsmesti hvað snertir fjölda tilfella. Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við þessari hröðu útbreiðslu og segja einn látast af völdum veirunnar á hálftíma fresti. Unnið er að þróun bóluefnis við því afbrigði sem nú geisar, sem gæti hið minnsta tekið nokkra mánuði. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Verð á hrá­ol­íu lækk­aði í að­drag­anda til­kynn­ing­ar um efna­hags­að­gerð­ir gegn Íran Fjárfestar búa sig undir útlistun bandarískra ráðamanna á hörðum efnahagsaðgerðum gegn Írönum í dag. Verð á hráolíu lækkaði í morgun og lækkun varð einnig á hlutabréfamörkuðum Asíu. Bandaríkjamenn hvetja samherja til þátttöku. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Tvö börn týndu lífi í dróna­árás á Krasnodar Markús Þ. Þórhallsson Tvö börn voru drepin ásamt því sem sjö börn og tveir fullorðnir særðust til viðbótar þegar brak úr úkraínskum dróna féll á einkarekinn leikskóla í Krasnodar-fylki í Rússlandi. Hér má sjá Krasnodar-fylki í Rússlandi. RÚV/Grafík / Kristrún Eyjólfsdóttir Héraðsstjórinn greindi frá þessu í færslu á samskiptaforritinu Telegram. Jafnframt hafi kviknað eldur í vöruhúsi eftir að dróni skall á því. Rússneski vefverslunarrisinn Ozon sagði engan hafa sakað í miklum eldsvoða í vöruhúsi hans í Krasnodar eftir drónaárás. Atlögur Úkraínumanna að rússneskum vöruhúsum hafa valdið milljarða bandaríkjadala efnahagsskaða og Úkraínuher boðaði í gær hrinu árása á Ozon í kjölfar svipaðra árása á vöruhús vefverslunarinnar Wildberries. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Knýja á leið­toga um af­hend­ingu loft­varn­ar­bún­að­ar og aukinn þrýst­ing á Rússa Leiðtogar Bandalags hinna viljugu ríkja koma saman í Kyiv í dag þar sem Úkraínumenn knýja á um afhendingu loftvarnarbúnaðar og aukinn þrýsting á Rússa. Loftvarnir eru orðnar af skornum skammti eftir umfangsmiklar eldflaugaárásir. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti For­seti UEFA segir In­fant­ino an­n­að­hvort þurfa að hætta sjálf­ur eða glíma við mót­fram­boð Forseti Knattspyrnusambands Evrópu segir umdeildan forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins verða að segja af sér eða mæta móttframboði í mars. Hann ætli sér þó alls ekki í framboð sjálfur. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Rap­haël Glucks­mann boðar for­seta­fram­boð Markús Þ. Þórhallsson Raphaël Glucksmann, leiðtogi stjórnmálahreyfingarinnar Place Publique, hefur boðað framboð fyrir forsetakosningarnar í Frakklandi á næsta ári. Raphaël Glucksmann boðar forsetaframboð í Frakklandi næsta vor. EPA / LUDOVIC MARIN / POOL Glucksmann tilkynnti framboðið á TF1 sjónvarpsstöðinni í gær og sagðist vilja auka vegsemd og virðingu Frakklands að nýju. Glucksmann hefur setið á Evrópuþinginu fyrir bandalag sósíalista og demókrata síðan 2019. Hann var einnig um hríð aðstoðarmaður Michaels Saakashvili, fyrrverandi forseta Georgíu. Greinendur telja Glucksmann höfða frekar til vinstrisinnaðra kjósenda en Jean-Luc Mélenchon, leiðtogi Óbugaðs Frakklands, La France insoumise. Hann þykir harla langt til vinstri á pólítíska litrófinu. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Zel­en­sky þver­tek­ur fyrir að skemmd­ar­verk­ið á Nord Stream 2 hafi verið úkra­ínsk hern­að­ar­að­gerð Úkraínuforseti þvertekur fyrir að skemmdarverkið á Nord Stream 2 gasleiðslunni í Norðursjó hafi verið hernaðaraðgerð runnin undan rifjum ráðamanna í Kyiv. Þýsk yfirvöld telja svo vera og hafa fyrrverandi yfirmann í Úkraínuher í haldi vegna málsins. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Sýr­lend­ing­ar og Ísra­elar ræða leiðir til að draga úr spennu Háttsettar sendinefndir Sýrlendinga og Ísraela ræddu saman um helgina með það markmið að draga úr spennu milli ríkjanna. Einnig þykir brýn þörf á að minnka núning milli Ísraels og Tyrklands. Leiðtogar landanna hafa deilt hástöfum síðustu viku. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kína Vél­menni sló heims­met Usains Bolt Vélmenni sló í dag heimsmet Usains Bolt í 100 metra hlaupi karla. Metið var slegið á keppnisleikum vélmenna í Peking í Kína. Heimsmet í hástökki var einnig slegið. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Reykjavíkurborg Svip­mynd­ir frá Menn­ing­ar­nótt Margt fólk gerði sér ferð í miðborgina í tilefni Menningarnætur í gær. Ljósmyndari RÚV náði fjölda skemmtilegra ljósmynda af hátíðahöldunum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Ekkert verður af kaupum Símans á vef- og út­varps­miðl­um Sýnar Samningaviðræðum Ása, sem áður voru Síminn, um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hefur verið slitið. Í tilkynningum beggja segir að ekki hafi náðst samkomulag um viðskiptin. Frestur til að ljúka gerð endanlegs kaupsamnings er liðinn. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Fimleikar Bretar vörðu tit­il­inn í liða­keppni en fengu sam­keppni frá Rússum Bretland varð Evrópumeistari í liðakeppni á Evrópumótinu í áhaldafimleikum karla. Rússar fengu aftur keppnisleyfi fyrir mótið og veitt Bretum afar harða samkeppni. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Írland Neitar að mæta til yf­ir­heyrslu vegna hvarfs Jóns Þrast­ar Írska lögreglan hefur haft upp á manni í Liverpool sem hún telur geta haft upplýsingar um hvarf Jóns Þrastar Jónssonar. Maðurinn hefur hins vegar hafnað því að koma í yfirheyrslu. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Vík­ing­ar end­ur­heimtu átta stiga for­skot sitt á toppn­um Víkingur Reykjavík vann öruggan 2-0 sigur gegn Valsmönnum í Bestu deild karla í fótbolta. Liðið er nú með átta stiga forskot á toppi deildarinnar. 23. ágúst 2026 kl. 20:51INNLENDAR FRÉTTIR Andlát Davíð Þór minn­ist Steins Ár­manns: „Senni­lega hæfi­leik­a­rík­asti maður sem ég hef kynnst“ Steinn var maður margra hæfileika, frábær gamanleikari, frjór og skapandi, jarðbundinn og svo mannglöggur að það var nánast ofurhæfileiki, segir Davíð Þór Jónsson, æskuvinur Steins Ármanns Magnússonar, leikara, sem lést á föstudag. 23. ágúst 2026 kl. 20:26INNLENDAR FRÉTTIR Garðabær Syngj­andi leik­skóla­börn með 90 ára harm­on­ikku­leik­ara Hópur leikskólabarna af Hjallastefnuleikskólanum Ásum í Garðabæ heimsótti níræða harmonikkuleikarann Sigurð Hannesson í vikunni. 23. ágúst 2026 kl. 19:59INNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Telur skatta­hækk­un á baðlón rétt­læt­an­lega Fjármálaráðherra telur að virðisaukaskattshækkun á aðgang að baðlónum muni skila ríkissjóði 3-4 milljörðum króna á ári. Aðgerðin hafi einhver neikvæð áhrif en sé réttlætanleg. 23. ágúst 2026 kl. 19:43INNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Ósam­mála um gagn ESB-að­ild­ar fyrir ný­sköp­un­ar­fyr­ir­tæki Forsvarsmenn nýsköpunarfyrirtækja greinir á um það hversu vel Evrópusambandið hentar nýjum fyrirtækjum. Einn segir duga að vera í EES en annar að evran sé eftirsóknarverð. 23. ágúst 2026 kl. 19:07ÍÞRÓTTIR Fótbolti Aron sló „gamla“ marka­met­ið og ógnar „því nýja“ Aron Sigurðarson gerði þrennu í 3-5 sigri KR gegn KA í Bestu deild karla. Aron er nú með 20 mörk í deildinni. Hann stefnir óðfluga að markameti Benóný Breka Andréssonar sem skoraði 21 mark. Þá er hann búinn að toppa 19 marka klúbbinn svokallaða. 23. ágúst 2026 kl. 18:28ERLENDAR FRÉTTIR Noregur Heilsu Nor­egs­kon­ungs hrakar Í tilkynningu frá norsku konungshöllinni kemur fram að heilsu Haralds Noregskonungs hafi hrakað. 23. ágúst 2026 kl. 18:16ERLENDAR FRÉTTIR

Share this article