Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Auglýsa tvö embætti dómara við Landsrétt

Read Full Article →

Dómsmálaráðuneytið auglýsti tvö embætti dómara við Landsrétt laus til umsóknar á föstudag. Annað embættið er laust þar sem Ásgerður Ragnarsdóttir landsréttardómari var skipuð dómari við Hæstarétt í síðustu viku. Til stendur að skipa í það embætti hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfi umsækjenda skilar umsögn sinni. Setja á dómara í hitt embættið tímabundið til 28. febrúar 2029 vegna leyfis dómara. Einnig á að setja í það embætti sem fyrst. Hvaða kröfur eru gerðar til landsréttardómara? Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 21. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 970/2020 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra eða netföng, sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf landsréttardómara. Heimild: Lögbirtingablaðið.

Share this article