Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Arion lánar fyrir upp­byggingu í Þjórsár­dal

Read Full Article →

Rauðukambar ehf., dótturfélag Bláa Lónsins hf., hafa undirritað lánssamning við Arion banka um fjármögnun áframhaldandi uppbyggingar í Þjórsárdal. Verkefnið nær meðal annars til Fjallabaðanna, hótelsins Mountain Retreat í Rauðukömbum, Gestastofu Þjórsárdals auk smáhýsa og tjaldsvæðis við Selhöfða. „Um er að ræða eina umfangsmestu fjárfestingu sem í hefur verið ráðist í íslenskri ferðaþjónustu,“ segir í fréttatilkynningu. Fjárfesting Bláa lónsins í Þjórsárdal er metin á um 20 milljarða króna og kostnaður við endurbyggingu Fontana hleypur á milljörðum, eins og kom fram í nýlegri umfjöllun Viðskiptablaðsins. Sjá einnig Milljarða fjárfestingar Bláa Lónsins Bláa lónið undirritaði samninga við íslenska ríkið um uppbyggingu og rekstur þjónustumiðstöðvar og ferðaþjónustu í Þjórsárdal í maí síðastliðnum. Stefnt er að því að fyrsti hluti starfseminnar muni opna sumarið 2027 og gert er ráð fyrir að verkefnið verði að fullu komið í rekstur vorið 2028. Fram­kvæmdir eru þegar hafnar og í fullum gangi. „Þjórsárdalur er eitt merkasta náttúru- og sögusvæði Íslands. Uppbyggingin byggir á langtímasýn um að auka aðgengi að náttúru og sögu dalsins og styrkja hann sem heildstæðan áfangastað, með virðingu fyrir sérstöðu svæðisins að leiðarljósi.“

Share this article